Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 26. maí 2026

Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.
Vikubyrjun
26. maí 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir Hagstofan vöru- og þjónustuviðskipti við útlönd fyrir 1. ársfjórðung. Iceland Seafood birtir uppgjör.
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir maí og við spáum því að verðbólga lækki úr 5,2% í 4,9%. Hagstofan birtir einnig gistinóttatölur fyrir apríl. Brim, Hampiðjan og Ísfélagið birta uppgjör.
  • Á föstudag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir 1. ársfjórðung.

Mynd vikunnar

Í síðustu viku birti HMS vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Árshækkun bæði íbúðaverðs og leiguverðs lækkaði á milli mánaða. Hækkun á vísitölu íbúðaverðs fór úr 2,6% í 2,2% og leiguverðs úr 6,3% í 5,8%. Raunverð íbúða hefur lækkað og apríl er sjötti mánuðurinn í röð þar sem árshækkun íbúðaverðs mælist minni en hækkun á almennu verðlagi. Leiguverð hefur aftur á móti hækkað meira en almennt verðlag undanfarið.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 26. maí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.