Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 17. ág­úst 2026

Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðaverðs í júlí og Seðlabankinn birtir kortaveltutölur fyrir júlí. Eik og Síminn birta uppgjör.
  • Á miðvikudag tilkynnir peningastefnunefnd Seðlabankans vaxtaákvörðun og samhliða koma út ný Peningamál. Hagstofan birtir tölur um fjölda starfandi í júlí og HMS birtir vísitölu leiguverðs. Alvotech birtir uppgjör og verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
  • Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu og Kaldalón birtir uppgjör.
  • Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu launa.

Mynd vikunnar

Niðurstöður könnunar á væntingum markaðsaðila, sem Seðlabankinn framkvæmdi dagana 10.-12. ágúst, sýnir að verðbólguvæntingar, sér í lagi til skamms tíma, hafa aukist frá síðustu könnun sem gerð var í maí. Við spáum 5,5% verðbólgu í ágúst og að hún haldist yfir 5% út haustmánuðina. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar vænta markaðsaðilar þess að meginvextir hækki í 8% á yfirstandandi ársfjórðungi og byrji ekki að lækka fyrr en á næsta ári. Það er í takt við spá okkar um hækkun stýrivaxta í næstu viku. Þrálát verðbólga og versnandi verðbólguhorfur vega þar þungt, þótt hagkerfið sýni jafnframt merki um kólnun.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 17. ágúst 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.
17. sept. 2026
Spáum 5,8% verðbólgu í september
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.
Vikubyrjun
14. sept. 2026
Vikubyrjun14. september 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.
9. sept. 2026
Krónan styrkist þrátt fyrir halla á viðskiptum við útlönd
Um 150 milljarða króna halli mældist á viðskiptum við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins. Þrátt fyrir það hefur krónan styrkst. Skýringin er líklega sú að viðskiptum við útlönd fylgir ekki alltaf samsvarandi gjaldeyrisflæði. Viðskiptajöfnuður mælir tekjur og gjöld samkvæmt uppgjörsreglum en gengið ræðst af raunverulegum og væntum kaupum og sölu á gjaldeyri.