Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 4. maí 2026

Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og gistinóttum á hótelum fjölgaði á milli ára. Seðlabanki Bandaríkjanna, Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki héldu vöxtum óbreyttum.
Vikubyrjun
4. maí 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir Eimskip uppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Hagstofan fjölda starfandi í mars. Alvotech og Arion banki birta uppgjör.
  • Á fimmtudag birta Eik, Sýn og Íslandsbanki uppgjör.
  • Á föstudag verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum.

Mynd vikunnar

Áframhaldandi sviftingar eru á heimsmarkaðsverði á olíu. Á fimmtudaginn fór tunnan af Brent tímabundið yfir 126 USD. Markaðurinn með Brent hráolíu var óvenju óstöðugur fyrir helgi vegna þess að á fimmtudaginn var uppgjörsdagur á framvirkum samningum aprílmánaðar. Þá þurftu þeir sem halda á slíkum samningi að breyta honum í samning um afhendingu á raunverulegri hráolíu. Brent endaði síðan vikuna í 124,2 USD á tunnu. Almennt hafa verið miklar hækkanir undanfarið á olíuverði sem má rekja til stríðsátaka í Mið-Austurlöndunum og á meðan ekki sér fyrir endann á þeim er líklegt að verðið verði áfram hátt.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 4. maí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.
26. júní 2026
Verðbólgumælingin bendir til kólnunar þrátt fyrir hækkun ársverðbólgu
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á milli mánaða og skýrir sífellt stærri hluta ársverðbólgunnar. Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða sífellt skýrari.
Vikubyrjun
22. júní 2026
Vikubyrjun 22. júní 2026
Í vikunni fáum við verðbólgutölur fyrir júnímánuð, en við spáum því að verðbólga mælist 5,1% og standi í stað á milli mánaða. Í liðinni viku komu nýjar kortaveltutölur frá Seðlabankanum sem sýna að það hægir á vexti neyslunnar, en þó eru ekki merki um snöggkólnun líkt og fyrri gögn, sem nú hafa verið leiðrétt, höfðu bent til.
18. júní 2026
Áfram rólegt á íbúðamarkaði 
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og er talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur því lækkað um 2,4% á milli ára og maí er sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða. Velta á íbúðamarkaði hefur jafnframt verið talsvert minni það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
16. júní 2026
Seigla í einkaneyslu eftir allt saman?
Kortavelta íslenskra heimila stóð nokkurn veginn í stað á milli ára í maí, að teknu tillit til verðlags og gengis. Tölur fyrir apríl voru jafnframt leiðréttar upp á við en þær höfðu sýnt töluverðan samdrátt. Gömlu apríltölurnar voru birtar daginn fyrir ákvörðun peningastefnunefndar og hafa mögulega haft áhrif á ákvörðunina. Uppfærðar tölur benda til þess að áfram hægi á vexti einkaneyslu, en ekki til snöggkólnunar eins og apríltölurnar gáfu til kynna.
Vikubyrjun
15. júní 2026
Vikubyrjun 15. júní 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði í maí þrátt fyrir minna flugframboð en utanlandsferðir Íslendinga eru færri. Skráð atvinnuleysi mældist 4,2% í maí.
12. júní 2026
Samdráttur í sölu sumarhúsa eftir sterk ár
Fjölgun sumarhúsa hér á landi hefur haldist nokkuð stöðug síðasta áratug, en rúmlega helmingur sumarhúsa landsins er staðsettur á Suðurlandi. Kaupsamningum hefur fækkað lítillega frá því í fyrra og verðhækkanir hafa verið hóflegar.
11. júní 2026
Spáum því að verðbólga standi í stað í júní
Við spáum því að verðbólga standi í stað í júní og mælist aftur 5,1%. Ferðaþjónustutengdir liðir hækka alla jafna í júní og mun verð á flugfargjöldum til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar, gangi spáin eftir. Við gerum einnig ráð fyrir hækkun á hótelum og veitingastöðum í júnímælingunni. Við gerum ráð fyrir að verðbólga aukist næstu mánuði og teljum nánast öruggt að forsendur kjarasamninga bresti í ágúst.