Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Mán­aða­mót 4. maí 2026

Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Mánaðamót 2
4. maí 2026

Við birtum hagspá í nýliðnum mánuði þar sem við gerum ráð fyrir hófstilltum vexti næstu árin. Sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu mun vara lengur en áður var spáð. Bakslag í baráttunni við verðbólgu og hærri stýrivextir munu valda því að vöxtur innlendrar eftirspurnar verður lítill og fjárfesting dregst saman á sama tíma en á sama tíma verður útflutningsvöxtur með ágætum, ekki síst vegna loðnuveiða og eins þjónustuútflutnings tengdum gagnaverum. 

Verðbólga hjaðnaði í apríl úr 5,4% í 5,2% en við höfðum spá því að verðbólga myndi hækka upp í 5,5% í apríl. Mestu munaði um að flugfargjöld hækkuðu minna en við höfðum spáð. Þessi mæling gerir það að verkum að við teljum líkur á að Seðlabankinn taki mögulega minna skref en ella til hækkunar stýrivaxta í maí og hækki vexti um 0,25 frekar en 0,5 prósentustig. Við spáum því að verðbólga haldi áfram að hjaðna næstu mánuði, en spáin er þó háð mikilli óvissu sem tengist helst þróun heimsmarkaðsverðs á olíu. Stjórnvöld hafa boðað lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti úr 24% í 11%. Sú aðgerð lækkar vissulega verð á dælunni, en hækkun olíuverðs hefur áhrif á móti til hækkunar. 

Lesa fréttabréfið í heild:

Mánaðamót 4. maí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.
26. júní 2026
Verðbólgumælingin bendir til kólnunar þrátt fyrir hækkun ársverðbólgu
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á milli mánaða og skýrir sífellt stærri hluta ársverðbólgunnar. Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða sífellt skýrari.
Vikubyrjun
22. júní 2026
Vikubyrjun 22. júní 2026
Í vikunni fáum við verðbólgutölur fyrir júnímánuð, en við spáum því að verðbólga mælist 5,1% og standi í stað á milli mánaða. Í liðinni viku komu nýjar kortaveltutölur frá Seðlabankanum sem sýna að það hægir á vexti neyslunnar, en þó eru ekki merki um snöggkólnun líkt og fyrri gögn, sem nú hafa verið leiðrétt, höfðu bent til.
18. júní 2026
Áfram rólegt á íbúðamarkaði 
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og er talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur því lækkað um 2,4% á milli ára og maí er sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða. Velta á íbúðamarkaði hefur jafnframt verið talsvert minni það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
16. júní 2026
Seigla í einkaneyslu eftir allt saman?
Kortavelta íslenskra heimila stóð nokkurn veginn í stað á milli ára í maí, að teknu tillit til verðlags og gengis. Tölur fyrir apríl voru jafnframt leiðréttar upp á við en þær höfðu sýnt töluverðan samdrátt. Gömlu apríltölurnar voru birtar daginn fyrir ákvörðun peningastefnunefndar og hafa mögulega haft áhrif á ákvörðunina. Uppfærðar tölur benda til þess að áfram hægi á vexti einkaneyslu, en ekki til snöggkólnunar eins og apríltölurnar gáfu til kynna.
Vikubyrjun
15. júní 2026
Vikubyrjun 15. júní 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði í maí þrátt fyrir minna flugframboð en utanlandsferðir Íslendinga eru færri. Skráð atvinnuleysi mældist 4,2% í maí.
12. júní 2026
Samdráttur í sölu sumarhúsa eftir sterk ár
Fjölgun sumarhúsa hér á landi hefur haldist nokkuð stöðug síðasta áratug, en rúmlega helmingur sumarhúsa landsins er staðsettur á Suðurlandi. Kaupsamningum hefur fækkað lítillega frá því í fyrra og verðhækkanir hafa verið hóflegar.
11. júní 2026
Spáum því að verðbólga standi í stað í júní
Við spáum því að verðbólga standi í stað í júní og mælist aftur 5,1%. Ferðaþjónustutengdir liðir hækka alla jafna í júní og mun verð á flugfargjöldum til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar, gangi spáin eftir. Við gerum einnig ráð fyrir hækkun á hótelum og veitingastöðum í júnímælingunni. Við gerum ráð fyrir að verðbólga aukist næstu mánuði og teljum nánast öruggt að forsendur kjarasamninga bresti í ágúst.