Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans. Hagvöxtur verður hóflegur og drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári.
Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson úr greiningardeild Landsbankans ræða hagspána við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um efnahagsmál og annað sem tengist starfsemi bankans frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um efnahagsmál og bankastarfsemi.










