Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

At­vinnu­leysi ólíkt eft­ir hóp­um

Atvinnuleysi mjakast upp, störfum er hætt að fjölga og minni eftirspurn er eftir vinnuafli en áður. Aukið atvinnuleysi síðustu mánuði má þó nánast eingöngu rekja til erlends vinnuafls. Atvinnuleysi hefur lítið breyst meðal Íslendinga og er lítið í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir kólnun á vinnumarkaði hefur kaupmáttur launa aukist og einkaneysla haldist sterk, en það hefur stutt við eftirspurn og viðhaldið verðbólguþrýstingi.
Gönguleið
6. mars 2026

Spenna á vinnumarkaði hefur dvínað hægt og rólega á síðustu árum. Um mitt ár 2023 náði atvinnuleysi lágpunkti eftir að hafa aukist töluvert vegna faraldursins. Síðan hefur eftirspurn eftir vinnuafli smám saman minnkað. Á allra síðustu mánuðum hefur atvinnuleysi þokast upp á sama tíma og störfum er hætt að fjölga. Skráð atvinnuleysi var að meðaltali 3,9% í fyrra og nú í janúar mældist atvinnuleysi 4,9% samkvæmt Vinnumálastofnun, sem er 0,7 prósentustigum hærra en í sama mánuði árið áður. Atvinnuleysi hefur ekki mælst svo hátt síðan í mars 2022.

Lítið atvinnuleysi meðal Íslendinga

Sé litið til þróunar atvinnuleysis eftir þjóðerni blasir nokkuð tvískiptur vinnumarkaður við. Sem fyrr segir mældist skráð atvinnuleysi í janúar 4,9% samkvæmt tölum Vinnumálastofnunnar, en atvinnuleysi meðal Íslendinga mældist 2,7% en 10,6% meðal erlendra ríkisborgara. Atvinnuleysi meðal Íslendinga hefur lítið breyst síðustu ár. Það mældist að meðaltali 2,1% bæði árin 2023 og 2024, en hækkaði örlítið í fyrra og mældist þá 2,2%. Janúarmælingin í ár er því í raun fyrsta mæling sem bendir til aukins atvinnuleysis meðal Íslendinga, en atvinnuleysi hefur ekki mælst hærra síðan í maí árið 2022 þegar það mældist 2,8%. Þá voru áhrif faraldursins á atvinnuleysi að fjara út. Atvinnuleysi meðal innflytjenda hefur aftur á móti greinilega aukist ár frá ári og mældist að meðaltali 6,8% árið 2023, 7,8% árið 2024 og 8,6% í fyrra.

Lítið atvinnuleysi meðal íslenskra ungmenna

Athygli vekur að atvinnuleysi meðal íslenskra ungmenna mælist mjög lágt. Atvinnuþátttaka ungmenna á Íslandi hefur sögulega verið hærra en í Evrópu, líka samanborið við hin Norðurlöndin. Sú staða virðist lítið hafa breyst.

Atvinnuleysi meðal innflytjenda skýrir því að mestu leyti þróun atvinnuleysis síðustu ár. Efnahagslegar þrengingar hafa almennt meiri áhrif á atvinnuleysi meðal innflytjenda og er það alls ekki séríslenskt fyrirbæri. Þá hafa árstíðabundnar sveiflur að jafnaði meiri áhrif á atvinnuleysi innflytjenda en Íslendinga, enda starfar stór hluti erlends vinnuafls frekar í árstíðarbundnum greinum, líkt og ferðaþjónustu. Þá starfa innflytjendur hlutfallslega oftar í tímabundnum störfum og hafa styttri starfsaldur sem getur leitt til þess að þeim er fyrr sagt upp þegar hægir á í hagkerfinu. Auk þess getur skortur á íslenskukunnáttu gert innflytjendum erfiðara um vik að fóta sig á íslenskum vinnumarkaði, svo fátt eitt sé nefnt.

Kaupmáttur launa hefur aukist og einkaneysla ekki gefið eftir

Laun hækkuðu að meðaltali um 7,9% á síðasta ári og kaupmáttur jókst um 3,1% á milli ára á lokafjórðungi ársins. Kjarasamningar liggja nú fyrir á langstærstum hluta vinnumarkaðar til næstu ára og launaþróun í ár ætti því að vera fyrirsjáanlegri en síðustu ár. Það má þó hafa í huga að ein af forsendum síðustu kjarasamninga var sú að verðbólga mælist ekki yfir 4,7% í ágúst næstkomandi. Mælist hún hærri opnast heimild til að segja kjarasamningunum upp, semjist ekki um annað viðbragð. Miðað við síðustu verðbólgumælingar, sem hafa verið umfram spár, hafa líkur á þeirri sviðmynd aukist og því hefur óvissa um launaþróun aðeins aukist að okkar mati. Einkaneysla hefur ekki gefið eftir og raunar jókst hún jafnt og þétt á öllu síðasta ári og var megin drifkraftur hagvaxtar í fyrra. Það skýtur skökku við að þetta sé veruleikinn á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist.

Hvað er hægt að lesa í þetta?

Samhliða háum vöxtum og þéttu peningalegu aðhaldi hafa laun hækkað umfram verðbólgu, sem stutt hefur við aukna neyslu og þannig viðhaldið verðbólguþrýstingi. Á sama tíma benda bæði aukið atvinnuleysi og vísbendingar um minni eftirspurn fyrirtækja eftir vinnuafli til þess að spenna á vinnumarkaði sé farin að dvína. Þó vekur athygli að aukið atvinnuleysi megi nær alfarið rekja til erlends vinnuafls, á meðan atvinnuleysi meðal Íslendinga er áfram lágt. Það gæti þýtt að kólnunin birtist fyrst í þeim hluta vinnumarkaðarins sem er viðkvæmari fyrir efnahagsþrengingum, en hafi að einhverju leyti minni áhrif á heildarneyslu og eftirspurn í hagkerfinu, að minnsta kosti til skamms tíma. Það mætti því segja að háir vextir hafi aðeins kælt hluta vinnumarkaðarins, enn sem komið er, en kaupmáttur og neysla hafi enn ekki gefið nægilega eftir til að ná verðbólgu að markmiði.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
27. maí 2026
Seigla í ferðaþjónustunni þrátt fyrir mikla óvissu
Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.
Vikubyrjun
26. maí 2026
Vikubyrjun 26. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.
Stýrivextir
20. maí 2026
Vextir hækkaðir og horfur versnandi
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.
19. maí 2026
Vísbendingar um að einkaneysla gefi eftir
Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
Vikubyrjun
18. maí 2026
Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.
Stýrivextir
13. maí 2026
Spáum 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.
12. maí 2026
Spáum 4,9% verðbólgu í maí
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.
Vikubyrjun
11. maí 2026
Vikubyrjun 11. maí 2026
Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.
8. maí 2026
Stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði - spáum þó lítils háttar veikingu
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.
4. maí 2026
Sólmyrkvinn gæti skapað verðbólguskot á versta tíma
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Gríðarleg eftirspurn er eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið er uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmissi þjónustu verður líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést.