Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólgu­mæl­ing­in bend­ir til kóln­un­ar þrátt fyr­ir hækk­un ár­s­verð­bólgu

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á milli mánaða og skýrir sífellt stærri hluta ársverðbólgunnar. Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða sífellt skýrari.
26. júní 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða í júní, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Flugfargjöld til útlanda skýra muninn á spá okkar og mælingu Hagstofunnar. Þau skýra einnig áfram stærstan hluta hækkunar á milli mánaða í júní og eru nú um 28% hærri en í fyrra.  Árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis mældist 4,8% í júní og munurinn á vísitölunni með og án húsnæðis minnkar því áfram. Húsnæðisliðurinn er því sífellt minni hluti verðbólgunnar.

Vísbendingar um kólnun sífellt skýrari

Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða æ meira áberandi í verðbólgutölum. Framlag matvöru, húsnæðis og fatnaðar til ársverðbólgu hefur minnkað þó nokkuð síðustu mánuði. Framlag flestra liða til ársverðbólgu hefur dregist nokkuð saman frá ársbyrjun en mikil hækkun á eldsneyti og flugfargjöldum veldur því að verðbólga dregst ekki meira saman og virðist nokkuð föst í kringum 5,2%.  

Breytt samsetning

Ef við skoðum breytingu á samsetningu ársverðbólgu sést að flugfargjöld til útlanda hafa langmest áhrif til hækkunar ársverðbólgunnar á milli mánaða. Framlag ferðaþjónustu án flugfargjalda eykst einnig lítillega. Framlag innfluttra vara án bensíns minnkaði á milli mánaða, sem og framlag húsnæðis sem minnkar lítillega.

Helstu liðir

  • Matarkarfan hækkaði um 0,23% í júní. Matarkarfan er 3,9% dýrari en fyrir ári.
  • Föt og skór lækkuðu um 0,74% í júní. Verð á fötum og skóm er því 1,2% lægra en fyrir ári.
  • Flugfargjöld hækkuðu um 20,1% í júní. Nú er um 28% dýrara að fljúga en fyrir ári síðan.
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,6%. Árshækkun húsnæðisliðarins í heild var 6,5% nú í júní en var 7,2% í ársbyrjun.
  • Verð á eldsneyti lækkaði lítillega í júní, eða um rétt tæplega hálft prósent.

Aðeins betri verðbólguhorfur

Þrátt fyrir að júnítalan hafi verið aðeins hærri en við gerðum ráð fyrir lækkar spá okkar til næstu mánaða. Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,15% í júlí, 0,01% í ágúst og lækki um 0,06% í september. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,0% í júlí, 5,2% í ágúst og 5,0% í september.

Lægri spá skýrist af tvennu. Í fyrsta lagi breyttum við forsendum um þróun olíuverðs með tilliti til nýlegrar þróunar og aukinnar bjartsýni um að skipaflutningar um Hormússund komist í eðlilegt horf. Í öðru lagi gerum við nú ráð fyrir minni hækkun flugfargjalda í júlí vegna mikillar hækkunar nú í júní. Áhrif flugfargjalda á verðbólgu eru þó meiri í spánni til næstu mánaða en í síðustu spá.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.