Vikan framundan
- Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðaverðs. Icelandair birtir uppgjör.
- Á miðvikudag birtir HMS vísitölu leiguverðs. Verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir júlí og við eigum von á að verðbólgan verði óbreytt í 5,2%. Hagstofan birtir vísitölu launa, HMS birtir mánaðarskýrslu, Landsbankinn birtir uppgjör og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
Mynd vikunnar
Alls voru 227 þúsund manns starfandi á íslenskum vinnumarkaði í maí og fjölgaði þeim um 0,5% á milli ára. Innflytjendur eru fjórðungur starfandi, eða 57 þúsund manns. Að jafnaði eru í kringum 23 þúsund fleiri starfandi um sumarið en um vetur. Fyrir utan þessa árstíðarsveiflu er fjöldi starfandi með íslenskum bakgunn mun stöðugri en fjöldi innflytjenda: Erlendu vinnuafli á íslenskum vinnumarkaði fjölgar þegar vel gengur, en að sama skapi fækkar í þeim hópi þegar verr árar.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst um 4,6% að raunvirði á milli ára í júní. Innanlands jókst hún um 1,9% en erlendis um 13%. Velta erlendra greiðslukorta hér á landi dróst saman um 1% á föstu verðlagi en jókst um 3,2% á föstu gengi.
- Verðbólga í Bandaríkjunum féll úr 4,2% í 3,5% á milli mánaða í júní, aðallega vegna lægri bensínverðs. Talan var lægri en búist var við.
- Skagi birti uppgjör ásamt árshlutareikningi Fossa. Sjóvá birti uppgjör. Amaroq birti niðurstöður neðanjarðarborana í Nalunaq. Kvika banki fékk leyfi til útgáfu sértryggðra skuldabréfa.
- Lánamál ríkisins héldu útboð á ríkisvíxlum og ríkisbréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










