Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 13. júlí 2026

Ferðamannafjöldinn í júní dróst saman um 4,8% á milli ára og atvinnuleysi mældist 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan. Við spáum því að verðbólga í júlí muni mælast óbreytt á milli mánaða og standa í 5,2%.  
Vikubyrjun
13. júlí 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtast verðbólgutölur í Bandaríkjunum.  
  • Á miðvikudag birtir Skagi uppgjör. 
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan gögn um fjölda starfandi og Sjóvá birtir uppgjör. 
  • Á föstudag birtir Seðlabankinn gögn um kortaveltu í júní. 

Mynd vikunnar

Methalli mældist á vöruviðskiptum á öðrum ársfjórðungi samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Hallinn nam alls 180 mö.kr. og skýrist einna helst af auknum innflutningi. Innflutningsverðmæti jukust um tæp 9% en útflutningsverðmæti jukust minna, eða um 5%. Mikið var flutt inn af fjárfestingarvörum, sér í lagi tölvuvörum fyrir gagnaver, sem bendir til þess að gagnaversfjárfestingar verði áfram töluverðar. Vöxtur í útflutningsverðmætum á milli ára skýrist að hluta af grunnáhrifum þar sem minna var flutt út á sama tíma í fyrra. 

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Við gáfum út verðbólguspá fyrir júlí og spáðum því að verðbólga verði óbreytt á milli mánaða í 5,2%.  
  • 223 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Keflavíkurflugvelli í júní sem er 4,8% fækkun á milli ára. Uppsafnað frá áramótum mælist 0,9% samdráttur í brottförum erlendra ferðamanna. Brottfarir Íslendinga um Keflavíkurflugvöll drógust saman um 5,3% á milli ára í júní. Frá áramótum hefur utanferðum Íslendinga fækkað um 13% á milli ára. 
  • Skráð atvinnuleysi var 4,0% í júní og lækkar um 0,2 prósentustig á milli mánaða. Það er 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan.  
  • Icelandair birti farþegatölur, Skagi uppfærði rekstrarhorfur fyrir árið í ár og Hagar luku sölu á nýjum skuldabréfaflokki
  • Lánamál ríkisins tilkynntu um niðurstöðu viðbótarútgáfu og birtu Markaðsupplýsingar.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 13. júlí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.
Vikubyrjun
27. júlí 2026
Vikubyrjun 27. júlí 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,3% í júlí. Áfram sjást merki um hægagang á fasteignamarkaði en fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára á sama tíma og fjöldi íbúða til sölu hefur aukist.
23. júlí 2026
Verðbólga jókst lítillega í júlí
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs. 
8. júlí 2026
Spáum óbreyttri verðbólgu í júlí
Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.