Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um óbreyttri verð­bólgu í júlí

Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.
8. júlí 2026

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,34% á milli mánaða í júlí og að ársverðbólga verði því áfram 5,2%. Hagstofan birtir júlímælingu vísitölu neysluverðs fimmtudaginn 23. júlí. Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hafi lang mest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Sumarútsölur hafa hins vegar áhrif til lækkunar, ásamt eldsneytisverði sem hefur lækkað um 3% frá síðasta mánuði, samkvæmt verðathugun okkar. Við gerum ráð fyrir að eldsneytisverð lækki frekar í næsta mánuði en teljum ólíklegt, miðað við núverandi spá, að verðbólga mælist undir forsenduákvæði kjarasamninga.

Flugfargjöld hafa mest áhrif til hækkunar í júlí

Flugfargjöld til útlanda hafa verið tæplega 20% dýrari í ár en í fyrra. Í júní hækkuðu þau töluvert umfram spá okkar og kostuðu um 28% meira en í júní í fyrra. Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hækki um 15,2% milli mánaða í júlí og verði um 23% dýrari en á sama tíma í fyrra. Flugfargjöld hækka jafnan í júní og júlí en lækka svo í ágúst.

Sumarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í júlí

Við gerum ráð fyrir að sumarútsölurnar verði svipaðar og í fyrra og að verð á fötum og skóm lækki um 5% milli mánaða nú í júlí. Útsölutakturinn á fötum og skóm breyttist eftir heimsfaraldurinn. Fyrir faraldurinn lækkaði verð á fötum og skóm yfirleitt um rúmlega 10% í janúar- og júlíútsölum, en eftir faraldur hefur verð á fötum og skóm lækkað minna. Við gerum ráð fyrir að útsölurnar gangi til baka í ágúst og september. Áhrif af sumarútsölum sjást yfirleitt líka í húsgögnum og heimilisbúnaði sem við gerum ráð fyrir að lækki um 1,5% nú í júlí.

Eldsneytisverð hefur lækkað milli mánaða

Verð á eldsneyti hefur lækkað um rétt tæplega 3% frá síðasta mánuði, samkvæmt verðathugun okkar. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði talsvert síðasta mánuðinn en hefur svo hækkað lítillega aftur síðustu daga. Við gerum ráð fyrir því að lækkanir komi áfram fram í eldsneytisverði hér á landi næsta mánuðinn, en það ræðast áfram að miklu leyti af sveiflum á heimsmarkaðsverði olíu.

Húsnæði og matur hækka minna

Árshækkun matarkörfunnar mældist 3,9% í júní og hafði lækkað töluvert frá því í ársbyrjun, þegar hún mældist 6,8%. Við gerum ráð fyrir að matarkarfann hækki um 0,23% milli mánaða í júlí og yrði árshækkun því áfram rétt um 4%, gangi spáin eftir.

Húsnæðisliðurinn er enn sá liður sem skýrir stærstan hluta verðbólgunnar, en framlag hans hefur þó minnkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Af 5,2% verðbólgu í ársbyrjun skýrði reiknuð húsaleiga 2,2 prósentustig. Í júní var framlagið 0,3 prósentustigum minna, eða 1,9 prósentustig af 5,2% verðbólgu. Framlag liðarins er því að dragast hægt og rólega saman og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram næstu mánuði. Við spáum því að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% milli mánaða og annar kostnaður vegna húsnæðis hækki um 0,2%.

Spá um þróun VNV í júlí 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,3% 0,3% 0,04%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,3% -5,0% -0,17%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,3% 0,2% 0,02%
Reiknuð húsaleiga 20,7% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 3,9% -1,5% -0,06%
Heilsa 3,9% 0,3% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 0,3% 0,02%
Kaup ökutækja 4,6% -0,2% -0,01%
Bensín og díselolía 2,6% -3,0% -0,08%
Flugfargjöld til útlanda 3,5% 15,2% 0,46%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% -0,3% -0,01%
Afþreying, íþróttir og menning 8,9% -0,5% -0,05%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,7% 1,0% 0,05%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,5% 0,01%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,2% 0,01%
Alls 100,0%   0,34%

Verðbólga hækkar í ágúst, en fer svo að lækka

Skammtímaspá okkar hefur sveiflast nokkuð allra síðustu mánuði. Það skýrist að mestu af óvissu tengdri stöðunni fyrir botni Persaflóa og áhrifum hennar á olíuverð, en einnig komu flugfargjöld til útlanda okkur þó nokkuð á óvart í júní. Við spáum nú minni verðlækkun á bensíni í júlí en við gerðum ráð fyrir í lok júní þegar Hagstofan birti júnímælingu vísitölunnar. Á móti gerum við ráð fyrir meiri lækkun í ágúst.

Nýlega var tilkynnt að komugjald á heilsugæslu yrði hækkað úr 500 kr. í 1.000 kr. frá og með 1. ágúst. Samkvæmt okkar mati verða áhrifin af því um 0,1 prósentustig til hækkunar á ársverðbólgu í ágúst.

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,34% í júlí og 0,03% í ágúst, lækki um 0,03% í september og hækki um 0,16% í október. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,2% í júlí, 5,4% í ágúst, 5,3% í september og 5,0% í október. Spáin er lítillega hærri en síðasta spá okkar, sem birt var eftir júlímælingu Hagstofunnar. Munurinn skýrist einkum af minni lækkun eldsneytisverðs í júlí en áður var gert ráð fyrir og vegna hærri komugjalda á heilsugæslu í ágúst.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.