Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga jókst lít­il­lega í júlí

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
23. júlí 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða í júlí og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við höfðum spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,34% og að verðbólga yrði óbreytt í 5,2%. Júlí er sjöundi mánuðurinn í röð þar sem verðbólga mælist yfir 5%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hélst óbreytt á milli mánaða í 4,8%. Þetta er síðasta mælingin sem birtist fyrir vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar þann 19. ágúst og teljum við líkur á að vextir verði hækkaðir aftur þá.

Breytt samsetning ársverðbólgu

Ef við skoðum breytingu á samsetningu ársverðbólgu sést að framlag bensíns lækkaði á milli mánaða. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur aftur á móti hækkað síðan í verðkönnunarvikunni, þannig að það er viðbúið þetta gangi til baka í ágúst. Framlag ferðaþjónustu án flugfargjalda til útlanda og framlag húsnæðis hækkaði.

Helstu liðir

Það var mjög lítill munur á spá okkar og mælingu Hagstofunnar og enginn undirliður sem kom mikið á óvart. Matarkarfan var næstum óbreytt á milli mánaða, en við áttum von á smá hækkun. Upplýsingar og fjarskipti hækkuðu, en við áttum von á smá lækkun.

  • Matarkarfan var næstum óbreytt á milli mánaða, en við spáðum 0,3% hækkun.
  • Föt og skór lækkuðu um 4,7% vegna júlíútsalna, sem er svipað og síðustu ár.
  • Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um tæp 15,7%, en við spáðum 15,2% hækkun. Flugfargjöld eru nú 23% dýrari en fyrir ári.
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,6% eins og við áttum von á.
  • Eldsneytisverð lækkaði um 3,6% á milli mánaða, en við spáðum 3,0% lækkun.

Eigum von á að verðbólga verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði

Við gerum ráð fyrir að vísitalan lækki um 0,08% í ágúst, hækki um 0,16% í september og hækki um 0,11% í október. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,3% í ágúst, 5,4% í september og 5,0% í október. Við gerum ekki miklar breytingar frá síðustu spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni. Við gerum þó ráð fyrir aðeins lægri ársverðbólgu í ágúst, en aftur á móti meiri í september sem skýrist m.a. af því að komugjöld á heilsugæslu hækka samkvæmt reglugerð í september, en ekki ágúst, líkt og frétt á vef stjórnarráðsins í byrjun júlí gaf til kynna. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað talsvert síðan í verðkönnunarvikunna og erum við því að gera ráð fyrir hærra olíuverði næstu mánuði.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.