Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 29. júní 2026

Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.
Vikubyrjun
29. júní 2026

Vikan framundan

  • Á þriðjudaginn birtir Hagstofan gistinætur í maí. Hagar birta uppgjör.
  • Á miðvikudag verða birtar verðbólgutölur á evrusvæðinu.
  • Á fimmtudag verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum.  

Mynd vikunnar

Í síðustu viku birti Hagstofan veltu út frá VSK-skýrslum fyrir VSK-tímabilið mars-apríl. Veltan jókst á milli ára að raunvirði í sjávarútvegi vegna loðnu og fiskeldis og í hugverkaiðnaði vegna starfsemi sem tengist gagnaverum. Velta dróst saman í ferðaþjónustu, aðallega vegna minni veltu í farþegaflutningum í flugi, m.a. vegna þess að Play hætti starfsemi síðasta haust og í framleiðslu málma vegna bilunar hjá Norðuráli. Innanlands var verulegur samdráttur í sölu bifreiða, en mjög mikið var selt rétt fyrir áramót vegna breytinga á opinberum gjöldum um áramót. Aukning var í bæði heildverslun og smásöluverslun sem bendir til að einkaneysla hafi enn verið sterk á tímabilinu. Samdráttur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð skýrist af minni veltu í þróun byggingarverkefna.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 29. júní 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
31. ágúst 2026
Ál og fiskur skýra samdrátt á öðrum fjórðungi
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdráttur í vöruútflutningi, sér í lagi áli og sjávarafurðum skýrir samdráttinn að mestu. Minni vöxtur var í einkaneyslu. Fjárfesting, önnur en atvinnuvega, dróst saman.
Vikubyrjun
31. ágúst 2026
Vikubyrjun 31. ágúst 2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst. Samkvæmt VSK-skýrslum jókst velta í helstu útflutningsgreinum í maí og júní, að ferðaþjónustu undanskilinni. Mörg félög í kauphöllinni birtu uppgjör í síðustu viku. Í dag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir annan ársfjórðung.
27. ágúst 2026
Verðbólga eykst í 5,6% - hækkanir á breiðum grunni
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.
26. ágúst 2026
Velta eykst í útflutningsgreinum en innlend eftirspurn kólnar
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.