Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 27. júlí 2026

Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,3% í júlí. Áfram sjást merki um hægagang á fasteignamarkaði en fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára á sama tíma og fjöldi íbúða til sölu hefur aukist.
Vikubyrjun
27. júlí 2026

Vikan framundan

  • Á morgun birtir Festi uppgjör. 
  • Á miðvikudag birta Arion banki og Íslandsbanki uppgjör. Seðlabanki Bandaríkjanna tekur ákvörðun um vexti. 
  • Á fimmtudaginn birtir Hagstofan fjölda gistinótta í júní, Englandsbanki tekur ákvörðun um vexti og það verða birtar verðbólgutölur í Bretlandi. 

Mynd vikunnar

Áfram virðist vera að hægja á fasteignamarkaði. Fjölda kaupsamninga um íbúðarhúsnæði hefur fækkað á milli ára, átta mánuði í röð. Á sama tíma hefur fjöldi íbúða til sölu verið að aukast og í byrjun júlí voru 6.400 íbúðir auglýstar til sölu. Fjöldi nýbygginga til sölu hefur haldist nokkuð stöðugur það sem af er ári og skýrist því aukinn fjöldi íbúða til sölu af fjölgun eldri íbúða á söluskrá.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða í júlí og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Júlí er sjöundi mánuðurinn í röð sem verðbólga mælist yfir 5%. Við höfðum spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,34% og að verðbólga yrði óbreytt í 5,2%. Það var mjög lítill munur á spá okkar og mælingu Hagstofunnar og enginn undirliður sem kom mikið á óvart. Þetta er síðasta mælingin sem birtist fyrir vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar þann 19. ágúst og teljum við líkur á að nefndin hækki vexti þá. 
  • Í síðustu viku birti HMS vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júní, en ársbreyting hennar lækkaði úr 2,2% í 1,8%. Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,39% og er árshækkun hennar 5,7%. 
  • Seðlabanki Evrópu hélt vöxtum bankans óbreyttum. Allir nefndarmenn peningastefnunefndar bankans voru sammála um ákvörðunina, en nokkrir nefndarmenn ræddu þó möguleikann á að hækka vexti. 
  • Verðbólga í Bretlandi lækkaði úr 2,8% í 2,6% í júní. Mælingin var aðeins lægri en búist var við. Lækkunin byggði á lægra olíuverði, lækkun á matvælaverði og sterkum útsöluáhrifum á fatnaði.  
  • Icelandair (fjárfestakynning) og Landsbankinn birtu uppgjör. 
  • Lánamál ríkisins birtu niðurstöðu úr viðbótarútgáfu.  

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 27. júlí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.
23. júlí 2026
Verðbólga jókst lítillega í júlí
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,2% í 5,3%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Að þessu sinni kom enginn undirliður mikið á óvart. Við búumst við að verðbólgan verði áfram yfir 5% næstu þrjá mánuði.
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs.