Hvað er ClickFix?
ClickFix er netárásaraðferð sem byggir á félagslegri blekkingu (e. social engineering), þar sem netglæpamenn reyna að fá notendur til að framkvæma aðgerðir sem geta leitt til þess að spilliforrit sé sett upp á tölvum þeirra. Í stað þess að reyna að brjótast beint inn í tölvuna er markmiðið að fá notandann sjálfan til að keyra skaðlegar skipanir, oft undir því yfirskini að verið sé að leysa tæknilegt vandamál eða framkvæma nauðsynlega staðfestingu.
ClickFix getur meðal annars birst sem:
- Falsað CAPTCHA-próf þar sem þú færð beiðni um að staðfesta að þú sért ekki vélmenni með því að fylgja óvenjulegum leiðbeiningum.
- Villuboð á vefsíðum þar sem þér er sagt að framkvæma ákveðnar aðgerðir til að laga vandamál.
- Skilaboð um að nauðsynlegt sé að uppfæra hugbúnað eða breyta stillingum tölvunnar.

Hvað ber að varast?
Algeng er að ClickFix árás hefjist á að notandi sé beðinn um að opna forrit eða framkvæma skaðlega skipun á tölvunni sinni. Stoppaðu strax og lokaðu vefsíðunni ef óvænt skilaboð biðja þig um eitthvað af eftirfarandi:
- Ýta á Windows + R til að opna keyrsluglugga.
- Opna PowerShell, Command Prompt eða Terminal.
- Afrita og líma inn skipun til að leysa meint vandamál.
- Keyra skipun til að staðfesta að þú sért manneskja.
- Slökkva á öryggisvörnum eða breyta öryggisstillingum tölvunnar.

Hvað áttu að gera ef þú verður fyrir ClickFix-árás?
Ef þú hefur fylgt grunsamlegum leiðbeiningum eða keyrt skipun sem gæti tengst ClickFix skaltu aftengja tölvuna frá netinu. Næst þarf að athuga hvort spillibúnaður hafi verið settur upp á tölvunni og hreinsa hann út. Það getur verið gott að leita sér hjálpar á þessu stigi, t.d. hjá CERT-IS (www.cert.is).
ClickFix er gott dæmi um hvernig netglæpamenn nýta sér vilja okkar til að leysa vandamál fljótt og halda áfram með dagleg verkefni. Það er mikilvægt að þekkja slíkar ógnir og vera meðvituð um aðferðirnar sem netglæpamenn nota. Um leið og við höfum lært að greina áhættumerkin erum við strax mun betur í stakk búin til að varast þeim.
Með aukinni fræðslu og vitundarvakningu getum við dregið úr hættu á netárásum og því tjóni sem þær kunna að valda.










