Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, setti fyrsta Atvinnuvegaþing Landsbankans miðvikudaginn 23. september, þar sem sjónum var beint að tækifærum í tækni- og hugverkaiðnaði.
Lilja tengdi 140 ára sögu Landsbankans við það hlutverk hans að styðja við íslenskt atvinnulíf og verðmætasköpun. Hún ræddi hvernig tækni- og hugverkaiðnaður stendur bæði sem sjálfstæð atvinnugrein og teygir sig inn í aðrar greinar, þar sem nýjar lausnir verða gjarnan til við að leysa raunveruleg verkefni. Því skipti máli að hér sé öflugt og fjölbreytt atvinnulíf og umhverfi sem styður við fjárfestingu, þróun og nýsköpun.
Upptaka frá fundinum
Opnunarávarp ráðherra

Kolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytis, ávarpaði þingið í fjarveru atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínar Friðriksson. Hann fjallaði um þann mikla vöxt og verðmætasköpun sem hefur átt sér stað í tækni- og hugverkaiðnaði á undanförnum árum, bæði í veltu og fjölgun starfa. Áhrif greinarinnar ná víða og teygja sig um virðiskeðju atvinnulífsins. Kolbeinn sagði stjórnvöld vel meðvituð um mikilvægi greinarinnar til framtíðar og vísaði þar til atvinnustefnu Íslands, sem mörkuð er til næstu tíu ára.
Hugvit á fullri ferð

Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, setti þróun greinarinnar í efnahagslegt samhengi í erindi sínu „Hugvit á fullri ferð“. Samsetning útflutnings hefur breyst mikið á síðustu tíu árum og stendur hann nú á fleiri stoðum en áður. Svokallaður „annar útflutningur“ er orðinn um þriðjungur af heildarútflutningi landsins og tækni- og hugverkaiðnaður er stærsti einstaki flokkurinn þar. Varlega áætlað skilaði greinin um 16% af útflutningsverðmætum Íslands árið 2025. Vöxturinn hefur jafnframt verið mikill og hraðari en í öðrum greinum, sem endurspeglar þá miklu framtíðarmöguleika sem felast í greininni.
Hátækni á heimsvísu

Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalífs, fjallaði um vegferð fyrirtækisins og uppbyggingu hátækniframleiðslu fyrir alþjóðlegan markað í erindi sínu „Hátækni á heimsvísu“. Algalíf er 15 ára gamalt líftækni- og vísindafyrirtæki sem sérhæfir sig í ræktun örþörunga, en áhugi á nýtingu þeirra hefur aukist mikið á undanförnum árum. Að baki framleiðslunni liggur áralangt rannsóknar- og þróunarstarf þar sem íslenskar aðstæður – endurnýjanleg orka, hreint vatn og kalt loftslag – fara saman við sérhæfða þekkingu og mannauð. Starfsemi Algalífs er þannig byggð á samspili náttúruauðlinda og hugvits.
Treble ævintýrið: Uppbygging djúptæknisprota

Dr. Finnur Pind, meðstofnandi og forstjóri Treble Technologies, fjallaði um reynsluna af því að byggja upp djúptæknisprota í erindi sínu „Treble ævintýrið: uppbygging djúptæknisprota“. Gervigreind færist sífellt nær raunheiminum og þarf því gögn sem endurspegla hvernig við skynjum umhverfið. Treble nýtir eðlisfræðihermun til að búa til hljóðgögn fyrir gervigreind, í stað þess að reiða sig eingöngu á upptökur úr raunheimum. Með öðrum orðum: Treble kennir gervigreindinni að heyra.
Uppskera!

Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis eignarhaldsfélags, fjallaði um hvernig ólík vaxtarskeið tæknifyrirtækja kalla á mismunandi fjármagn og eignarhald í erindi sínu „Uppskera!“. Með reynsluna af Tempo og Origo sem dæmi sýndi hann hvernig íslenskt hugvit, erlent fjármagn og virkir eigendur geta stutt við vöxt og umbreytingu fyrirtækja. Hann lagði jafnframt áherslu á samkeppnishæfa hvata og að íslensk tæknifyrirtæki þurfi svigrúm til að stækka og dafna – enda felist mikilvægur styrkur í stærðinni.
Pallborðsumræður

Að lokum fóru fram líflegar pallborðsumræður undir stjórn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, um hvað þurfi til að viðhalda vexti tækni- og hugverkaiðnaðar. Fyrirsjáanleiki, R&Þ-hvatar, fjármögnun, gervigreind og samkeppnishæft starfsumhverfi voru þar fyrirferðarmikil.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, boðaði breytingar á R&Þ-kerfinu til að gera það einfaldara og fyrirsjáanlegra og sagði engin áform um að draga úr stuðningi.
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, sagði tækifærin mikil en varaði við því að hægja á eftir þann mikla vöxt sem þegar hefur náðst. Hann kallaði eftir einfaldara stuðningsumhverfi og meira rými fyrir fjölbreyttar og óvæntar hugmyndir.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, ræddi hlutverk banka í fjármögnunarkeðjunni og mikilvægi þess að skilja hvenær bankafjármögnun á við. Hún lagði jafnframt áherslu á að nýsköpun spretti oft úr raunverulegum verkefnum og vandamálum í fjölbreyttu atvinnulífi.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, lagði áherslu á fyrirsjáanleika, tækifærin sem felast í gervigreind og gagnaverum og möguleika á þverpólitískri samstöðu um samkeppnishæfara kaupréttarkerfi.
Kaupréttakerfi urðu einmitt eitt af lokamálum umræðunnar. Þegar salurinn var spurður hvort hætta væri á að breytingar á kerfinu festust í pólitískum skotgröfum réttu nær allir upp hönd.


























