Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­banka L-ið 40 ára – „ein­falt, skýrt og traust“

Árið er 1984 og undirbúningur fyrir aldarafmæli Landsbanka Íslands árið 1886 er kominn á fullt. Í september birtast auglýsingar um hugmyndasamkeppni í helstu blöðum landsins – hanna skal nýtt merki fyrir bankann í tilefni af 100 ára afmæli hans. Á bak við þá ákvörðun lá þó ekki löngun til að slíta tengslin við fortíðina heldur til að staldra við á stórum tímamótum og móta bankanum skýra ásýnd sem byggði á sögulegum grunni en horfði jafnframt til framtíðar.
Landsbankinn
21. október 2026

Á 100 ára sögu sinni hafði Landsbankinn þegar haft þrjú merki. Hið elsta, hér lengst til vinstri, má finna á fyrsta víxlinum sem Landsbankinn gaf út. Ekkert er vitað um uppruna þess en þar má m.a. sjá gríska guðinn Hermes fyrir miðju, guð kaupmanna og viðskipta. Hann er líka til staðar á næsta merki bankans sem talið er að sé fengið frá Danmörku upp úr aldamótum. Það var í notkun til ársins 1924. Hér er nafn bankans komið í öndvegi þó myndmálið sé enn áberandi og stærsti hluti þess. Þriðja merki bankans var síðan lengst í notkun, enn lengur en núverandi merki, eða frá 1924 til 1985. Það var einfaldara en fyrirrennarar sínir og færist áherslan frá goðum og þjóðsagnaverum enn frekar yfir á heiti bankans sjálfs sem er bæði skrifað fullum fetum og skammstafað.

Lógó Landsbankans

Síðasta merkið þótti fallegt og sitt sýndist hverjum um nauðsyn þess að breyta til. Í nóvember 1986 birti Helgarpósturinn pistil sem titlaður var „Virðuleika varpað fyrir róða“. Þar var haft eftir Brynjólfi Helgasyni hjá markaðssviði bankans að það væri „eðlilegt að mörgum þætti eftirsjá“ að gamla merkinu. Sem helstu ástæður fyrir leit að nýju merki segir Brynjólfur þá að hið gamla hefði oft verið erfitt í útfærslu enda „næstum verk fyrir listmálara að koma gamla merkinu á skilti“. Það væri erfitt að koma því fyrir á plastkortum og í auglýsingum – það uppfyllti ekki lengur þarfir samtímans. Hann nefnir einnig að til viðbótar við að vera flókið hafi sumum þótt merkið vera gamaldags og að það hafi ekki lengur hentað ásýndinni sem bankinn vildi miðla: „Þótt bankinn sé auðvitað gamalgróin stofnun þurfa hlutirnir ekki að vera gamaldags“.

Þátttaka í hugmyndasamkeppninni var heimil hverjum sem er og var hún haldin samkvæmt reglum Félags íslenskra teiknara (FÍT). Voru þátttakendum gefnar frjálsar hendur nema hvað skilyrði var að skila tillögu í einum lit. Þriggja manna dómnefnd, einn fulltrúi bankans og tveir utanaðkomandi sérfræðingar, var skipuð til að velja úr innsendu efni. Dómnefndin þurfti að hafa fyrir starfinu, því bankanum bárust 203 tillögur að nýju merki.

Hlutskarpastur í keppninni var Tryggvi T. Tryggvason, grafískur hönnuður, eða auglýsingateiknari eins og hann var þá titlaður. Hann tók við verðlaununum, 100 þúsund krónum (jafnvirði rúmlega einnar milljónar í dag), úr hendi þáverandi bankastjóra, Jónasar Haralz. Í umsögn dómnefndar var merki Tryggva lýst sem „einföldu, skýru og traustu“, auk þess sem það væri „þjált í alhliða notkun“. Tryggvi segir sjálfur að „markmiðið sé alltaf að merki séu einföld að forminu til og helst auðskilin“. Gott merki þarf að vera auðþekkjanlegt á augabragði, en jafnframt merkingarþrungið án frekari skýringa. L-ið vísar beint til Landsbankans, en opið form þess og jafnvægi ljá því í senn ákveðnu festu og hreyfanleika. Tryggvi skilaði tillögunni sinni í einum lit eins og beðið var um og valdi rautt. Fyrra merki bankans hafði verið blátt og þótti Tryggva upplagt að prófa eitthvað frískara og ferskara. Það hefur rímað vel við óskir bankans um að horfa til framtíðar.

Merkið hefur staðist tímans tönn. Það stendur í öllum sínum einfaldleika og traustu ásýnd nú sem aldrei fyrr fyrir tilgang bankans – að einfalda viðskiptavinum lífið og vera traustur banki fyrir farsæla framtíð.

Höfundur Landsbankamerkisins

Tryggvi T. Tryggvason, grafískur hönnuður, fer yfir söguna á bak við hönnun merkis Landsbankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. sept. 2026
Atvinnuvegaþing 2026 – upptökur
Atvinnuvegaþing Landsbankans fór fram í Hörpu 23. september þar sem sjónum var beint að tækifærum í tækni- og hugverkaiðnaði. Þingið var vel sótt og jafnframt sýnt í beinu streymi. Hér má horfa á upptöku frá þinginu og lesa stutta samantekt úr erindum og umræðum, auk þess að skoða myndir frá viðburðinum.
Lilja Björk Einarsdótti
2. sept. 2026
Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref
Verðtrygging íbúðalána er mannanna verk og það er hægt að hverfa frá henni með því að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti án verðtryggingar.
7. ágúst 2026
Öryggi og frelsi til að vera
Hinsegin félagsmiðstöðin fékk hæsta styrkinn sem úthlutað var úr Gleðigöngupotti Landsbankans og Hinsegin daga í ár. Miðstöðin hefur verið styrkþegi áður og haldið merkjum hinsegin ungmenna á lofti í gleðigöngunni. Í ár gefst tvöfalt tilefni til að mæta í gönguna með læti, glimmer og kæti, því Hinsegin félagsmiðstöðin fagnar líka 10 ára starfsafmæli sínu!
5. júní 2026
Fasteignamarkaður milli steins og sleggju
Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Landsbankann af Reykjavík Economics kemur fram að fasteignamarkaðurinn er á milli steins og sleggju. Vextir eru háir, óvissa er í efnahagsmálum og lengri tíma tekur að selja eignir.
8. maí 2026
Fermingar háannatími í hraðbönkum
Það kemur líklega fáum á óvart að meira sé um að fólk taki út peninga í hraðbönkum í kringum fermingar, enda er algengt að fermingarbörn fái reiðufé í fermingargjöf. En hversu mikið meira?
Herðubreið
26. mars 2026
Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum
Áhrifaríkasta aðferðin sem fjármálafyrirtæki hafa til að auka sjálfbærni er að beina fjármagni á rétta staði.
Kvennalandsliðið 2025
4. mars 2026
Sýnum stuðning okkar í verki
Okkur í Landsbankanum þykir vænt um að auglýsingaherferðin sem við settum í loftið til að vekja athygli á góðum árangri íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrir EM kvenna skuli hafa fengið þrjár tilnefningar til Lúðursins. Úrslit verða tilkynnt föstudaginn 6. mars og við bíðum spennt!
Þorvaldur Jónsson og Benni
13. jan. 2026
Sögulegir atburðir komast ekki alltaf í sögubækurnar
Dagatal Landsbankans fyrir árið 2026 er tileinkað ýmsum sögulegum atburðum á Íslandi sem skiptu ekki endilega stórmáli í efnahags- og stjórnmálasögu landsins en eru samt sem áður bæði merkilegir og mikilvægir. Við fengum myndlistarmanninn Þorvald Jónsson til að gera nokkrum slíkum atburðum skil.
Kirkjan Vík í Mýrdal
4. des. 2025
Sparnaðarráð Grýlu
Það er svo ótalmargt sem gerir tilkall til okkar um jólin að tíminn er af skornum skammti. Það tekur tíma að skipuleggja, versla, þrífa, baka, mæta á allar jólaskemmtanir og fylgjast nógu vel með jólabókaflóðinu til að vera gjaldgeng á kaffistofunni eða í saumaklúbbnum ... Hvernig eigum við að finna tíma fyrir þetta allt? Við hringdum í vin – Grýlu.
Hamborgartréð tendrað í Reykjavík
6. nóv. 2025
Hamborgartréð - saga samfélagsbreytinga og þakklætis
Saga Hamborgartrésins er hógvær, en á vissan hátt bæði breytingasaga Reykjavíkur og falleg jólasaga gjafmildi og þakklætis.