Öryggi og frelsi til að vera

Hinsegin félagsmiðstöðin er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Samtakanna 78 og er starfrækt af Tjörninni, frístundamiðstöð. Starfið er helst sniðið að þörfum hinsegin ungmenna á aldrinum 13 til 16 ára. Félagsmiðstöðin hefur verið starfrækt í núverandi mynd frá árinu 2016 en þá var Hrefna Þórarinsdóttir ráðin forstöðukona hennar. „Miðstöðin er með fastan opnunartíma á þriðjudögum og fimmtudögum,“ segir Hrefna. „Það er mjög vel mætt, allt að 80-100 sem mæta í hvert skipti. Við höfum einnig boðið upp á klúbbastarf, til dæmis handavinnuhóp, Anime hóp og D&D-hóp. Svo tökum við hugarflug og vinnum saman í kringum sérstaka viðburði eins og okkar árlega „prom“, sem er okkar eigin árshátíð og skipuleggjum þátttöku í mikilvægum viðburðum á hinsegin dagatalinu, eins og Gleðigöngunni.“
Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að veita hinsegin börnum og unglingum öruggt rými til að vera þau sjálf, kynnast öðrum hinsegin unglingum, styrkja sjálfsmyndina og gefa þeim kost á að tilheyra hinsegin samfélagi. „Það eru samt öll hjartanlega velkomin og engin skylda að vera hinsegin til að mæta. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggt umhverfi sem þeim líður vel í. Í raun má segja að eini munurinn á starfi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar og annarra félagsmiðstöðva fyrir sama aldurshóp er að hjá okkur er hinseginleikinn viðmiðið, ekki undantekningin,“ segir Hrefna.

Til að bæta upplifun hinsegin barna og ungmenna vega tveir þættir þyngst, sýnilegur stuðningur annars vegar og hins vegar að stöðva mismunun og særandi orðræðu. Hvort tveggja eru þættir sem geta haft jákvæð áhrif á allt hinsegin samfélagið, sem og vini hinsegin fólks og fjölskyldur þeirra. Einnig skiptir máli að vinna að sértækari þáttum sem hafa áhrif á trans og intersex fólk, svo sem aðstöðumálum og inngildandi málnotkun. Félagsmiðstöðin hefur boðið foreldrum og aðstandendum upp á fræðslukvöld um málefni er varða hinsegin ungmenni. Hrefna segir að fræðsla sé enda mikilvægur hluti af starfi miðstöðvarinnar, sem eru sú eina sinnar tegundar á landinu. Auk þess að styrkja bakland hinsegin ungmenna og þau sjálf hefur Hrefna haldið fyrirlestra fyrir kennara og starfsfólk almennra félagsmiðstöðva víðs vegar um landið til að kynna leiðir til að taka á móti og styðja hinsegin ungmenni.
Félagsmiðstöðin hefur hlotið hvatningaverðlaun Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, Hvatningaverðlaun Skóla-og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, verið nefnd sem Best Practice youth work af Norrænu ráðherranefndinni, hlotið viðurkenningu Barnaheilla, verið tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna sem framúrskarandi þróunarverkefni og fleira.


