Sýnum stuðning okkar í verki

Hugmyndin að herferðinni kviknaði þegar Glódís Perla Viggósdóttir var kjörin íþróttamaður ársins 2024. Í kjölfarið heimsótti hún uppeldisfélagið sitt HK og þar myndaðist mikil stemning þegar ungir aðdáendur biðu í röð eftir að hitta Glódísi og fá eiginhandaráritun. Með herferðinni ákváðum við að snúa dæminu við og gefa fólki kost á að gefa landsliðskonunum eiginhandaráritun til að sýna þeim stuðning í verki.
Dúkarnir fylltust af nöfnum
Útbúið var sérstakt viðmót á vef Landsbankans þar sem almenningi gafst kostur á að gefa landsliðinu rafrænar eiginhandaráritanir. Við settum líka upp stóra dúka á fjölmennum íþróttaviðburðum þar sem gestir gátu ritað nafnið sitt. Þetta hitti í mark og sem dæmi má nefna þá fylltust dúkarnir sem við settum upp á TM mótinu í Vestmannaeyjum, á Ísland-Frakkland leiknum og á Skólahreysti á nokkrum mínútum! Dúkarnir fylgdu síðan stelpunum okkar út á lokamót EM í Sviss.
Sjónvarpsauglýsingin sem fylgdi herferðinni var sú umfangsmesta sem bankinn hefur látið gera um margra ára skeið. Hægt er að horfa á auglýsinguna á Youtube – og sjón er sögu ríkari – en þar fylgjumst við með ungri stúlku sem fréttir af undirskriftasöfnuninni og stekkur af stað í leit að penna, eins og fjöldi manns um allt land gerði í raun. Herferðin var unnin í samstarfi við vörumerkjastofuna Tvist, auglýsingin var framleidd af Norður og Álfheiður Marta Kjartansdóttir leikstýrði.
Í tengslum við EM skrifaði Boltagreiningadeild Landsbankans líka grein á Umræðuna þar sem farið var yfir stórauknar vinsældir kvennaknattspyrnu, jafnt á Íslandi og úti í heimi.
En hver var tilgangurinn með þessu öllu saman?
Við viljum hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Landsbankinn er einn stærsti styrktaraðili landsins og meðal þess sem við styrkjum er íþrótta- og æskulýðsstarf um allt land. Við höfum verið stoltur bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands og styrkjum meðal annars öll yngri landsliðin, A-landslið kvenna og karla og uppbyggingarstarf íslenskrar knattspyrnu um allt land. Þetta gerum við bæði með samstarfssamningum sem Markaðsdeildin okkar sér um en útibúin okkar um allt land styrkja líka íþrótta- og æskulýðsstarf í sinni heimabyggð – og ekki bara fótbolta!
Stuðningur bankans birtist einnig í úthlutun úr styrktarsjóðum og stuðningi við fjölbreytt samfélagsverkefni, menningu og listir. Í gegnum starfsemi sína styður bankinn sömuleiðis við atvinnu, nýsköpun og uppbyggingu um allt land.
Við tökum líka þátt í samfélaginu með beinum hætti. Þannig höfum við boðið gestum og gangandi upp á viðburði í húsi bankans við Reykjastræti, t.d. í tengslum við HönnunarMars og Menningarnótt. Sérfræðingar bankans taka virkan þátt í umræðunni og við höfum líka deilt þekkingunni sem í bankanum býr í keppnum eins og Gullegginu, þar sem við aðstoðum keppendur við gerð viðskipta- og fjárhagsáætlana.
Meira um stuðning Landsbankans í ársskýrslunni
Betri saman
Landsliðið hefur náð mjög góðum árangri og landsliðskonurnar eru frábærar fyrirmyndir. Stemningin sem myndaðist í kringum handskrifuðu dúkana var einstök, ekki síst þegar ungar fótboltastelpur hópuðust að þeim. Frá landsliðinu heyrðist að þeim þótti vænt um að finna fyrir þessum mikla stuðningi. EM-herferðin var ein af leiðum bankans til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Við erum mjög ánægð með hvernig til tókst og kunnum öllum sem að henni komu bestu þakkir fyrir góða samvinnu.



