Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Af­nem­um verð­trygg­ing­una - skref fyr­ir skref

Verðtrygging íbúðalána er mannanna verk og það er hægt að hverfa frá henni með því að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti án verðtryggingar.
Lilja Björk Einarsdótti
2. september 2026

Árið 2020 sáum við í Landsbankanum tækifæri til þess að bjóða viðskiptavinum hagkvæmari óverðtryggð lán með svipaðar mánaðarlegar greiðslur og verðtryggð lán. Við sáum fyrir okkur mánaðamót þar sem fólk greiðir afborgun og vexti af láninu og sér höfuðstól lánsins lækka. Við vildum gera þessa breytingu með viðskiptavinum og í þeirra þágu.

Við hófum breytingar á lánafyrirkomulagi verðtryggðra íbúðalána árið 2018 og byrjuðum smátt, en árið 2020 tókum við stærra skref. Þá styttum við lánstíma verðtryggðra lána þannig að mánaðarlegar greiðslur af þeim urðu nokkurn veginn jafnar mánaðarlegum greiðslum af óverðtryggðu láni. Viðskiptavinir okkar kunnu að meta þennan valkost og nýttu sér hann.

Stöðugleiki forsenda frekari árangurs

Í kjölfarið eru nú aðeins um helmingur íbúðalána hjá Landsbankanum verðtryggð en til samanburðar er hlutfall verðtryggðra íbúðalána 65% á markaðnum í heild. Það munar því um 115 milljörðum þegar hlutfall verðtryggðra lána hjá Landsbankanum er borið saman við hlutfallið á markaðnum í heild en það samsvarar um 2.900 heimilum.

Það skiptir máli að gera svona breytingar í hæfilegum skrefum, yfir langan tíma og nýta góðar markaðsaðstæður vel. Markmið bankans var að gefa fleiri viðskiptavinum tækifæri til að taka óverðtryggð íbúðalán en mikill áhugi hafði verið á því á meðal viðskiptavina. Framtíðarsýnin er íbúðalánamarkaður án verðtryggingar en til þess þarf líka að ná langtíma stöðugleika í íslensku hagkerfi og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta.

Þá þurfa lánveitendur einnig að taka ábyrgar og traustar ákvarðanir þannig að næsta kynslóð glími ekki við afleiðingar eins og við uppgjör Íbúðalánasjóðs, sem kostaði íslenska ríkið um 168 milljarða.

Aukinn fyrirsjáanleiki allra hagur

Nú eru um sex ár liðin frá því að við tókum fyrstu skrefin í afnámi verðtryggingar hjá Landsbankanum. Stýrivextir og verðbólga eru í dag mun hærri og greiðslubyrði heimilanna þyngri samhliða almennt hækkandi verðlagi. Við slíkar aðstæður breytist verkefnið oft úr því að sjá lánið lækka um hver mánaðamót yfir í það að ná endum saman. Við hjá Landsbankanum viljum geta mætt þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir með fjölbreyttari lánum þar sem hægt er að hafa meiri fyrirsjáanleika.

En til að geta boðið fólki upp á fjölbreyttari lán sem mæta mismunandi aðstæðum fólks þarf að taka til skoðunar regluverkið sem gildir um íslenska banka. Til viðbótar við Evrópureglur á þessu sviði eru einnig séríslenskar skorður í lögum og reglum sem takmarka m.a. getu bankanna til að bjóða viðskiptavinum fjölbreyttari óverðtryggð lán og draga þannig úr eftirspurn eftir verðtryggðum lánum. Óverðtryggð lán þurfa að verða samkeppnishæfari og raunverulegur valkostur fyrir viðskiptavini.

Sem dæmi um aukna fjölbreytni sem núverandi regluverk stendur í vegi fyrir mætti nefna lán á lægri föstum vöxtum til lengri tíma en nú er, með hærra uppgreiðslugjaldi. Fyrir fjölskyldu sem vill fyrirsjáanleika getur skipt meginmáli að vextirnir séu lægri og að þeir haldist óbreyttir til nokkurra ára.

Óverðtryggt lán er venjulegt lán

Það væri kostur að geta einn daginn útskýrt fyrir börnunum okkar hvernig lán virka án þess að samtalið endaði í tæknilegri flækju. Í dag hljómar samtalið eitthvað á þessa leið: „Verðtryggt lán virkar þannig að höfuðstólinn hækkar í takt við verðbólgu en þú greiðir lægri vexti en á óverðtryggðu láni. Þú sérð höfuðstólinn líklega hækka til að byrja með. Óverðtryggt lán er ekki verðtryggt og virkar þannig að þú borgar af því mánaðarlega og sérð það lækka samhliða, sem sagt bara lán.“

Það sést kannski best á því hvað íslenskt samfélag er samdauna verðtryggingunni að venjulegt íbúðalán heiti ekki bara íbúðalán heldur óverðtryggt íbúðalán.

Ekki greypt í stein

Verðtrygging íbúðalána er mannanna verk og það er hægt að hverfa frá henni með því að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti án verðtryggingar. Það á að vera sérstakt keppikefli að einfalda líf fólks á lánamarkaði, auka fyrirsjáanleika, mæta áskorunum með sveigjanleika og auka ánægju til lengri tíma. Við í Landsbankanum leitum allra leiða til þess og höfum stigið veigamikil skref í rétta átt. Það er til mikils að vinna.

Greinin birtist fyrst á Vísi miðvikudaginn 2. september 2026.

Þú gætir einnig haft áhuga á
7. ágúst 2026
Öryggi og frelsi til að vera
Hinsegin félagsmiðstöðin fékk hæsta styrkinn sem úthlutað var úr Gleðigöngupotti Landsbankans og Hinsegin daga í ár. Miðstöðin hefur verið styrkþegi áður og haldið merkjum hinsegin ungmenna á lofti í gleðigöngunni. Í ár gefst tvöfalt tilefni til að mæta í gönguna með læti, glimmer og kæti, því Hinsegin félagsmiðstöðin fagnar líka 10 ára starfsafmæli sínu!
5. júní 2026
Fasteignamarkaður milli steins og sleggju
Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Landsbankann af Reykjavík Economics kemur fram að fasteignamarkaðurinn er á milli steins og sleggju. Vextir eru háir, óvissa er í efnahagsmálum og lengri tíma tekur að selja eignir.
8. maí 2026
Fermingar háannatími í hraðbönkum
Það kemur líklega fáum á óvart að meira sé um að fólk taki út peninga í hraðbönkum í kringum fermingar, enda er algengt að fermingarbörn fái reiðufé í fermingargjöf. En hversu mikið meira?
Herðubreið
26. mars 2026
Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum
Áhrifaríkasta aðferðin sem fjármálafyrirtæki hafa til að auka sjálfbærni er að beina fjármagni á rétta staði.
Kvennalandsliðið 2025
4. mars 2026
Sýnum stuðning okkar í verki
Okkur í Landsbankanum þykir vænt um að auglýsingaherferðin sem við settum í loftið til að vekja athygli á góðum árangri íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrir EM kvenna skuli hafa fengið þrjár tilnefningar til Lúðursins. Úrslit verða tilkynnt föstudaginn 6. mars og við bíðum spennt!
Þorvaldur Jónsson og Benni
13. jan. 2026
Sögulegir atburðir komast ekki alltaf í sögubækurnar
Dagatal Landsbankans fyrir árið 2026 er tileinkað ýmsum sögulegum atburðum á Íslandi sem skiptu ekki endilega stórmáli í efnahags- og stjórnmálasögu landsins en eru samt sem áður bæði merkilegir og mikilvægir. Við fengum myndlistarmanninn Þorvald Jónsson til að gera nokkrum slíkum atburðum skil.
Kirkjan Vík í Mýrdal
4. des. 2025
Sparnaðarráð Grýlu
Það er svo ótalmargt sem gerir tilkall til okkar um jólin að tíminn er af skornum skammti. Það tekur tíma að skipuleggja, versla, þrífa, baka, mæta á allar jólaskemmtanir og fylgjast nógu vel með jólabókaflóðinu til að vera gjaldgeng á kaffistofunni eða í saumaklúbbnum ... Hvernig eigum við að finna tíma fyrir þetta allt? Við hringdum í vin – Grýlu.
Hamborgartréð tendrað í Reykjavík
6. nóv. 2025
Hamborgartréð - saga samfélagsbreytinga og þakklætis
Saga Hamborgartrésins er hógvær, en á vissan hátt bæði breytingasaga Reykjavíkur og falleg jólasaga gjafmildi og þakklætis.
Íbúðahús
28. okt. 2025
Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur
Við í Landsbankanum kynntum föstudaginn 24. október 2025 breytingar á framboði bankans á íbúðalánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamáli gegn Íslandsbanka.
16. okt. 2025
Vel heppnað fjármálamót um hvernig fyrirtæki nýta gögn til að bæta reksturinn
Góð aðsókn var að vel heppnuðu fjármálamóti um hvernig fyrirtæki nýta gögn til að bæta reksturinn sem haldinn var í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október. Á fundinum fjölluðu eigendur og stjórnendur hjá fimm fyrirtækjum um hvernig hagnýting gagna gerir betri ákvarðanir mögulegar.