Vikan framundan
- Á morgun birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll í febrúar. Sama dag birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi.
- Á fimmtudag birtir Eik uppgjör.
Mynd vikunnar
Átökin í Mið-Austurlöndum og lokun Hormússunds hafa aukið óvissu á orkumörkuðum. Sundið er ein mikilvægasta flutningsleið hráolíu og náttúrugass í heiminum og truflanir þar hafa þegar leitt til hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu og náttúrugasi. Heimsmarkaðsverð á olíu (Brent) fór tímabundið yfir 110 bandaríkjadal á fatið í morgun, en hefur síðan þá lækkað. Hærra olíuverð hefur áhrif á verðbólgu hér á landi, bæði með beinum og óbeinum hætti. Bein áhrif koma fram í bensínverði, auknum flutningskostnaði og hækkun framleiðslukostnaðar fyrirtækja. Sem stendur virðast áhrifin á íslenskt verðlag takmörkuð. Dragist átökin á langinn eykst hættan á viðvarandi hækkunum með neikvæðum áhrifum á verðbólgu og hagvöxt.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs mældist 38 ma.kr. halli á viðskiptum við útlönd. Þetta er talsvert betri niðurstaða en á fjórða ársfjórðungi árið áður, þegar halli mældist rúmlega 86 ma.kr. Hallinn á vöruskiptajöfnuði minnkaði á milli ára. Afgangurinn af þjónustujöfnuði dróst saman á milli ára og hallinn á rekstrarframlögum mældist sá sami á milli ára. Halli var á frumþáttatekjum á fjórða ársfjórðungi 2024, en nú mældist afgangur.
- Í nýjustu hagsjá okkar fjölluðum við um atvinnuleysi og hvernig það er ólíkt eftir hópum. Aukning atvinnuleysis síðustu mánuði hefur verið nær eingöngu bundin við erlent vinnuafl.
- Icelandair birti flutningstölur fyrir febrúar. Alls flutti félagið 289 þúsund farþega, sem er 15% aukning á milli ára. Mesta fjölgun á milli ára var í farþegum til og frá Íslandi, en tengifarþegum fjölgaða mun minna.
- Eimskip, Festi, Hampiðjan, Kaldalón, Oculis og Síldarvinnslan birtu uppgjör.
- Arion banki (skiptiútboð), Hafnarfjarðarkaupstaður, Heimar, Íslandsbanki (skiptiútboð) og Lánamál ríkisins seldu skuldabréf. Fossar og Alma íbúðafélag seldu víxla.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










