9. ágúst 2021 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Í vikunni fara fram verðmælingar vegna ágústmælingar vísitölu neysluverðs.
- Í dag birtir Seðlabankinn útreikning á raungegni í júlí og Lánamál ríkisins birta Markaðsupplýsingar.
- Á þriðjudag birtir Ferðamálastofa talningu á fjölda ferðamanna um Leifsstöð í júlí og Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi í júlí.
- Á miðvikudag birtir Skeljungur uppgjör.
- Á fimmtudag birtir Reginn uppgjör.
Mynd vikunnar
Í fyrra voru iðgjöld í lífeyrissjóði 270 ma. kr. og lífeyrisgreiðslur 190 ma. kr. Aðrar inngreiðslur og útgreiðslur voru óverulegar. Alls voru því um 80 ma. kr. í fyrra sem lífeyrissjóðir þurfa að finna fjárfestingartækifæri fyrir. Að meðaltali var þessi tala, á verðlagi ársins 2020, um 90 ma. kr. á ári síðustu fimm ár.
Efnahagsmál
- Það eru áfram batamerki á vinnumarkaði.
- Í júlí flutti Icelandair 195 þúsund ferðamenn milli landa og 14 þúsund ferðamenn innanlands.
- Tæplega helmingur erlendra ferðamanna um Leifsstöð í júlí voru Bandaríkjamenn.
- Hallinn á vöruviðskiptum við útlönd var 16,6 ma. kr. í júlí.
- Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júlí.
Fjármálamarkaðir
- Seðlabankinn bæði seldi og keypti gjaldeyri í júlí.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
29. nóv. 2024
Hagkerfið dróst saman á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Verri afkoma þjónustuviðskipta við útlönd skýrir að stórum hluta samdráttinn á fjórðungnum. Innlend eftirspurn jókst um 0,8% milli ára og samneysla og aukin fjármunamyndun vógu þyngst til hækkunar.
29. nóv. 2024
Skammtímaleiga í gegnum Airbnb hefur stóraukist eftir faraldurinn og framboð á íbúðum til langtímaleigu virðist hafa minnkað á móti. Þessi þróun gæti hafa átt þátt í að þrýsta upp leiguverðinu. Stærstur hluti Airbnb-íbúðanna er leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu.
28. nóv. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 5,1% í 4,8%, eða um 0,3 prósentustig. Reiknuð húsaleiga hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar og flugfargjöld til útlanda mest áhrif til lækkunar.
26. nóv. 2024
Nýjustu gögn af íbúðamarkaði benda til þess að lítillega hafi dregið úr eftirspurn. Grindavíkuráhrifin eru líklega tekin að fjara út og hugsanlega heldur fólk að sér höndum nú þegar vaxtalækkunarferlið er nýhafið og loks glittir í ódýrari fjármögnun. Verðið gæti tekið hratt við sér þegar vextir lækka af meiri alvöru.
25. nóv. 2024
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku, í takt við væntingar. Í þessari viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu nóvembermánaðar en við eigum von á að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Á föstudag, þegar Hagstofan birtir þjóðhagsreikninga, kemur svo í ljós hvernig hagvöxtur þróaðist á þriðja ársfjórðungi.
19. nóv. 2024
Við spáum því að verðbólga lækki nokkuð hratt allra næstu mánuði og í nýlegri verðbólguspá gerum við ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar, sem er talsverð hjöðnun frá núverandi gildum. Það er því ágætt að staldra við og skoða hvaða þættir munu skýra lækkunina, gangi spá okkar eftir.
18. nóv. 2024
Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,50 prósentustig á miðvikudaginn. Verðmælingar vegna nóvembermælingar vísitölu neysluverðs fóru fram í síðustu viku, en við spáum því að verðbólga hjaðni úr 5,1% niður í 4,5%. Tæplega 5% fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í október í ár en í fyrra og kortavelta þeirra hér á landi jókst um 5,4% miðað við fast verðlag. Kortavelta Íslendinga jókst um 6,8% að raunvirði á milli ára í október.
14. nóv. 2024
Verðbólga hefur hjaðnað nokkuð kröftuglega á síðustu mánuðum og við spáum því að hún mælist 4,5% í nóvember. Loks má greina merki um hægari gang í neyslu heimilanna og íbúðaverð virðist vera á minna flugi en áður. Þá virðist eftirspurn eftir vinnuafli hafa minnkað auk þess sem hægt hefur á launahækkunum. Peningalegt aðhald hefur aukist statt og stöðugt og landsframleiðsla gæti orðið lítillega minni á þessu ári en því síðasta.
14. nóv. 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga koma til lækkunar að þessu sinni, en húsnæði án reiknaðrar húsaleigu til hækkunar. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar á næsta ári.
11. nóv. 2024
Skráð atvinnuleysi hækkaði lítillega á milli ára í október og halli á vöruskiptajöfnuði jókst aðeins. Hagstofan birti þjóðhagsspá og bæði Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki lækkuðu vexti. Í vikunni fáum við gögn um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll, niðurstöður úr væntingakönnun markaðsaðila og tölur um veltu greiðslukorta. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni heldur áfram.