Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 30. júní 2025

Verðbólga jókst úr 3,8% og mældist 4,2% í júní. Aukin verðbólga skýrist aðallega af auknum þrýstingi á innfluttum vörum en einnig af hækkandi flugfargjöldum og verðhækkun á þjónustu. Þá jókst velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum um 1,5% að raunvirði í mars og apríl.
Flugvél á flugvelli
30. júní 2025

Vikan framundan

  • Á morgun verða birtar verðbólgutölur á evrusvæðinu.
  • Á fimmtudag verða birtar atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum.

Mynd vikunnar

Hernaðarátök í Miðausturlöndum hafa valdið snörpum sveiflum á heimsmarkaðsverði á olíu síðustu vikur. Á tímabili leit út fyrir að Íranar myndu freista þess að loka lykilsiglingaleið fyrir olíuflutninga, sem hefði líkast til valdið verulegri hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu. Olíuverðið hefur aftur á móti lækkað hratt á síðustu dögum, ekki síst eftir að hefndaráras Írana á herstöð Bandaríkjanna í Katar reyndist áhrifaminni en óttast var. Kæmi til harðnandi átaka sem hefðu í för með sér hækkandi olíuverð á heimsmarkaði mætti búast við að olíuverð hér á landi tæki hratt við sér. Ísland yrði þó líklega ekki síður fyrir óbeinum áhrifum af hækkandi olíuverði. Hærri framleiðslukostnaður í okkar helstu viðskiptalöndum gæti kynt undir innflutta verðbólgu sem myndi smita út frá sér í innlent verðlag, svo sem í gegnum dýrari aðföng og hærri verðbólguvæntingar. Hærra olíuverð myndi einnig bitna á útflutningsgreinunum, t.d. með því  að rýra kaupmátt í okkar helstu viðskiptalöndum sem gæti dregið úr ásókn í ferðalög hingað til lands og hækkað rekstrarkostnað flugfélaga, álfyrirtækja og sjávarútvegsfyrirtækja. Við það kynni gengi krónunnar að veikjast sem myndi ýta enn frekar undir innflutta verðbólgu.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 30. júní 2025 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
20. maí 2026
Vextir hækkaðir og horfur versnandi
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.
19. maí 2026
Vísbendingar um að einkaneysla gefi eftir
Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
Vikubyrjun
18. maí 2026
Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.
Stýrivextir
13. maí 2026
Spáum 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.
12. maí 2026
Spáum 4,9% verðbólgu í maí
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í maí. Gangi spáin eftir mun verðbólga lækka úr 5,2% í 4,9%. Lægra eldsneytisverð vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkun flugfargjalda hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða samkvæmt spánni. Við spáum að verðbólga mælist 4,9% í ágúst og kjarasamningar því mögulega í húfi.
Vikubyrjun
11. maí 2026
Vikubyrjun 11. maí 2026
Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.
8. maí 2026
Stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði - spáum þó lítils háttar veikingu
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.
4. maí 2026
Sólmyrkvinn gæti skapað verðbólguskot á versta tíma
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Gríðarleg eftirspurn er eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið er uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmissi þjónustu verður líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést.
Mánaðamót 2
4. maí 2026
Mánaðamót 4. maí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. maí 2026
Vikubyrjun 4. maí 2026
Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og gistinóttum á hótelum fjölgaði á milli ára. Seðlabanki Bandaríkjanna, Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki héldu vöxtum óbreyttum.