Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 8. sept­em­ber 2025

Í þessari viku ber hæst  útgáfu á tölum um fjölda ferðamanna í ágúst og skráð atvinnuleysi. Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar þar sem fram kom að allir nefndarmenn hefðu verið sammála um að halda vöxtum óbreyttum í ágúst. Þá birti Seðlabankinn einnig tölur um greiðslujöfnuð við útlönd sem gáfu til kynna mun meiri halla á viðskiptum við útlönd á öðrum fjórðungi þessa árs en þess síðasta.
8. september 2025

Vikan framundan

  • Á miðvikudag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll í ágúst og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi.
  • Á fimmtudag koma verðbólgutölur í Bandaríkjunum. Þá er einnig vaxtaákvörðun á evrusvæðinu.

Mynd vikunnar

Einkaneysla jókst um 3,1% á öðrum ársfjórðungi og hefur ekki aukist svo mikið síðan í byrjun árs 2023. Neyslan er í takt við síaukna kortaveltu landsmanna sem jókst um 6,3% að raunvirði á öðrum fjórðungi. Kortaveltugögnin gefa til kynna að vaxandi hluti neyslunnar fari fram erlendis, enda hefur utanlandsferðum fjölgað stöðugt. Neyslukrafturinn er athyglisverður í ljósi hins langvarandi háa vaxtastigs, en skýrist að miklu leyti af síauknum kaupmætti. Kaupmáttur launa var 4% meiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra, en eftir að verðbólga tók að hjaðna tók árshækkun launa hratt fram úr árshækkun verðlags.

Það helsta frá vikunni sem leið

  • Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar voru allir nefndarmenn einhuga um að halda vöxtum óbreyttum á fundi nefndarinnar í ágúst. Nefndarmenn voru sammála um að þétt taumhald peningastefnunnar hefði hægt á vexti eftirspurnar, en að þrátt fyrir það væri enn undirliggjandi eftirspurnarþrýstingur. Þá kom fram að þróun taumhaldsins næstu misseri væri háð því hversu langan tíma það tæki fyrir verðbólgu og verðbólguvæntingar að hjaðna.
  • Á öðrum ársfjórðungi mældist 82,3 ma.kr. halli á viðskiptum við útlönd. Þetta er mun verri niðurstaða en á öðrum ársfjórðungi síðasta árs, þegar halli mældist 34 ma.kr. Þyngst vegur að hallinn á vöruskiptajöfnuði jókst á milli ára. Afgangurinn af þjónustujöfnuði dróst einnig saman á milli ára og hið sama má segja um hallann á rekstrarframlögum. Halli var á frumþáttatekjum á öðrum ársfjórðungi í fyrra, en nú mældist afgangur.
  • Bandaríska hagkerfið bætti við 22 þúsund störfum í ágúst. Atvinnuleysi þar í landi jókst úr 4,2% í 4,3% í ágúst.
  • Garðabær og Alma íbúðafélag birtu uppgjör.
  • Alma íbúðafélag og Fossar fjárfestingarbanki héldu víxlaútboð. Landsbankinn lauk sölu á sértryggðum skuldabréfum. Lánamál ríkisins hélt útboð á ríkisbréfum.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 8. september 2025 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.
Vikubyrjun
16. mars 2026
Vikubyrjun 16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
Stýrivextir
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting. 
Mánaðamót 4
12. mars 2026
Spáum 5,4% verðbólgu í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
9. mars 2026
Verulegur halli á viðskiptum við útlönd í fyrra
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði á síðasta ári, en er engu að síðar mjög sterk. Krónan veiktist á móti evru í fyrra, en styrktist á móti bandaríkjadal. Sterk staða útflutningsgreina gæti stutt við krónuna á þessu ári þó órói á alþjóðasviðinu auki óvissuna.
Vikubyrjun
9. mars 2026
Vikubyrjun 9. mars 2026
Talsvert minni halli var á viðskiptum við útlönd á fyrsta ársfjórðungi ársins en á sama fjórðungi árið áður. Í vikunni fáum við ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi.
Gönguleið
6. mars 2026
Atvinnuleysi ólíkt eftir hópum
Atvinnuleysi mjakast upp, störfum er hætt að fjölga og minni eftirspurn er eftir vinnuafli en áður. Aukið atvinnuleysi síðustu mánuði má þó nánast eingöngu rekja til erlends vinnuafls. Atvinnuleysi hefur lítið breyst meðal Íslendinga og er lítið í alþjóðlegum samanburði. Þrátt fyrir kólnun á vinnumarkaði hefur kaupmáttur launa aukist og einkaneysla haldist sterk, en það hefur stutt við eftirspurn og viðhaldið verðbólguþrýstingi.