Vikan framundan
- Á morgun birtir Hagstofan veltu samkvæmt VSK-skýrslum og Ásar birta uppgjör.
- Á miðvikudag birta Arion banki, Festi og Skagi uppgjör. Þá er einnig vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur og við eigum von á að verðbólgan verði óbreytt í 5,9%. Hagstofan birtir einnig fjölda gistinótta þann sama dag. Þá birta Íslandsbanki, Landsbankinn og Nova klúbburinn uppgjör. Sama dag er einnig vaxtaákvörðun á evrusvæðinu.
Mynd vikunnar
Íslenska krónan hefur styrkst verulega undanfarið á sama tíma og verðbólga hefur verið nokkuð hærri hér á landi en í helstu viðskiptalöndum okkar. Þetta þýðir að raungengi hefur hækkað og Ísland því orðið sífellt dýrara. Á þriðja ársfjórðungi var raungengi íslensku krónunnar tæplega 20% hærra en að meðaltali frá 1980 og hefur einungis tvisvar á síðustu áratugum mælst hærra, á 1. ársfjórðungi 1988 og á 4. ársfjórðungi 2005. Í hagspá sem við birtum í síðustu viku gerum við ráð fyrir að krónan muni veikjast lítillega á næstu árum, en það mun þó ekki duga til þess að vega upp á móti þeirri styrkingu sem þegar er komin og meiri verðbólgu hér en í helstu viðskiptalöndum okkar. Það þýðir að raungengið mun halda áfram að hækka á næsta ári og muni fara yfir hæsta gildi sem hefur sést frá 1980.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,1% á milli mánaða í september, sem er mesta hækkun síðan í janúar. Vísitala leiguverðs lækkaði aftur á móti um 0,9% á milli mánaða í september, en þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem vísitalan lækkar. Ársbreyting vísitölu íbúðaverðs er 1,8% og vísitölu leiguverðs 1,1%. HMS birti einnig mánaðarskýrslu.
- Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar vegna fundarins 5.-6. október. Þar kemur fram að nefndarmenn voru sammála um að halda vöxtum óbreyttum og virðast ekki hafa rætt að breyta þeim.
- Verðbólga í Bretlandi jókst úr 3,1% í 3,5% í september. Helsta skýringin á hækkuninni var eldsneytisverð. Mælingin var aðeins yfir væntingum markaðsaðila.
- Vísitala launa hækkaði um 0,7% á milli mánaða. Ársbreyting vísitölunnar mælist nú 5,6%.
- Sjóvá og Icelandair (fjárfestakynning) birtu uppgjör. Lyfjastofnun Bandaríkjanna samþykkti nýja framleiðsluaðferð Alvotech. Icelandair lauk kaupum á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco ehf.
- Reykjavíkurborg og Lánamál ríkisins heldu skuldabréfaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










