Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist óbreytt í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir langmest af hækkuninni á milli mánaða. Pakkaferðir til útlanda skýra einnig töluvert af hækkuninni, en á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækkuðu í október sem hafði mest áhrif til lækkunar frá síðasta mánuði.
Verðbólga með og án húsnæðis sú sama
Húsnæðisliðurinn virðist loks vera farinn að gefa eftir, en síðustu tvo mánuði hefur reiknuð húsaleiga hækkað minna en samsvarandi mánuði í fyrra og þannig haft áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. Verðbólga með og án húsnæðis mælist nú sú sama, 5,9%. Verðbólga án húsnæðis hækkar fyrst og fremst vegna hækkunar á eldsneytisverði.
Eldsneytisverð heldur verðbólgunni uppi
Hækkun á eldsneytisverði vegur langþyngst til ársverðbólgunnar og er framlag þess 0,28 prósentustig. Verðbólga væri því um 5,6% ef eldsneytisverð hefði mælst óbreytt á milli mánaða. Innfluttar vörur, húsnæði og flugfargjöld til útlanda verka öll til lækkunar á verðbólgu. Það eru því skýr merki um að verðbólga sé að gefa eftir, en meðan olíuverðshækkanir eru jafn miklar og raun ber vitni, breytist verðbólgan hægt.
Helstu liðir:
- 8,9% verðhækkun á eldsneyti hafði langmest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Við gerum ráð fyrir að eldsneytisverð hækki aftur í nóvember og fari svo að gefa eftir, en töluverð óvissa er þó áfram um þennan lið.
- Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,4%, þó nokkuð minna en í október í fyrra. Liðurinn hefur því áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. Árshækkun á liðnum er nú um 6,1% og því enn töluvert yfir öðrum mælikvörðum á íbúða- og leiguverði og því gerum við ráð fyrir að framlag hans til ársverðbólgu dragist áfram saman í takt við minni hækkanir á íbúða- og leigumarkaði.
- Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 3,1% á milli mánaða en við höfðum spáð um 2,3% lækkun. Flugfargjöld til útlanda eru nú um 28% dýrari en á sama tíma í fyrra.
- Verð á matarkörfunni hækkaði um 0,37%, en við spáðum 0,3% hækkun.
- Hækkun komugjalda í sjúkra-, iðju-, og talþjálfun hafði áhrif í mánuðinum og hækkaði heilsuliðurinn því um 1,8%, sem er aðeins meira en við höfðum spáð.
Þó húsnæðisliðurinn hækki minna nú en í október í fyrra og sé því til lækkunar ársverðbólgu hefur hann samt næstmest áhrif til hækkunar sjálfrar vísitölunnar á milli mánaða, á eftir eldsneytisverði. Matur og drykkjarvörur höfðu einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum, þó það sé minna en fyrir ári síðan, og heilsuliðurinn hækkaði nokkuð vegna nýju komugjaldanna.
Spáum 5,9% verðbólgu í nóvember og 5,7% í desember
Við gerum núna ráð fyrir að vísitalan lækki um 0,46% í nóvember, hækki um 0,9% í desember og lækki um 0,17% í janúar. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast 5,9% í nóvember, 5,7% í desember og lækka svo í 5,1% í janúar. Hækkun frá síðustu spá skýrist af því að við gerum ráð fyrir hærra eldsneytisverði en í síðustu spá, en að árshækkun á flugfargjöldum verði aðeins lægri en í fyrri spá. Við gerum einnig ráð fyrir að verð á nýjum bílum hækki í nóvember þegar lækkun á rafbílastyrk tekur gildi. Hafa ber í huga að áfram ríkir talsverð óvissa um þróun eldsneytisverðs.
Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.
Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.










