Vikubyrjun 4. mars
Samkvæmt bráðabirgðamati Hagstofu Íslands var 4,9% hagvöxtur á síðasta ári. Þetta er töluvert meira en almennt var búist við, en opinberar spár lágu á bilinu 3,5% (nóvemberspá ASÍ) og 4,6% (októberspá greiningardeildar Arion banka). Greiningaraðilar eru almennt sammála um að toppi núverandi hagsveiflu hafi þegar verið náð og gera ráð fyrir mun hóflegri hagvexti á árunum 2019-2020.
4. mars 2019
Vikan framundan
- Klukkan 9 í morgun birti Seðlabankinn tölur um greiðslujöfnuð, erlendar skuldir og erlenda stöðu þjóðarbúsins.
- Á miðvikudag birtir Ferðamálastofa tölur um fjölda ferðamanna um Leifsstöð í febrúar.
- Á fimmtudag birtir Seðlabankinn útreikninga á raungengi í febrúar og upplýsingar um millibankamarkað með gjaldeyri og krónur.
Mynd vikunnar
Samkvæmt bráðabirgðamati Hagstofu Íslands var 4,9% hagvöxtur á síðasta ári. Þetta er meira en almennt var búist við, en opinberar spár lágu á bilinu 3,5% (nóvemberspá ASÍ) og 4,6% (októberspá greiningardeildar Arion banka). Greiningaraðilar eru sammála um að toppi núverandi hagsveiflu hafi þegar verið náð og gera ráð fyrir mun hóflegri hagvexti á árunum 2019-2020.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Verðbólgan hjaðnaði niður í 3,0% í febrúar.
- Hagvöxtur í fyrra mældist 4,9%.
- Þjónustujöfnuður dróst saman milli ára í fyrra.
- Síminn, Skeljungur, Festi, Félagsbústaðir, VÍS, Lykill fjármögnun, Kvika, HB Grandi, Sýn og Eimskip birtu ársuppgjör.
- Landsvirkjun, RARIK og HS Veitur birtu einnig ársuppgjör.
- Hagtölur sýna sterkan vinnumarkað en væntingar stjórnenda eru neikvæðar.
- Ýmislegt bendir til þess að óhagstæðara sé að leigja en að kaupa fasteign.
- Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um 7,0 ma. kr. í janúar.
- Gistinóttum fækkaði um 4% milli ára í janúar.
- Íslandsbanki lauk útboði sértryggðra skuldabréfa, Reitir luku skuldabréfaútboði.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

11. des. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.

8. des. 2025
Talsvert minni afgangur mældist af viðskiptum við útlönd á þriðja ársfjórðungi þessa árs en þess síðasta. Í síðustu viku gaf Seðlabankinn út yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og fundargerð peningastefnunefndar. Í þessari viku verða birtar ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi fyrir nóvembermánuð.

1. des. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. des. 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.

28. nóv. 2025
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.

27. nóv. 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.

24. nóv. 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.

21. nóv. 2025
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.

17. nóv. 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.

14. nóv. 2025
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í október og verðbólgumælingin bar þess merki að undirliggjandi verðþrýstingur hefði aukist. Í ljósi breytts lánaframboðs og óviðbúinna áfalla í útflutningsgeirunum má líkast til búast við mildari tón frá peningastefnunefnd.