Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.

18. maí 2026
Vikan framundan
- Í dag birtir Kaldalón uppgjör.
- Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðaverðs og Seðlabankinn birtir tölur um greiðslumiðlun í apríl.
- Á miðvikudag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Samhliða vaxtaákvörðuninni birtir SÍ Peningamál. HMS birtir vísitölu leiguverðs.
- Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu og Síldarvinnslan birtir uppgjör.
- Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu launa.
Mynd vikunnar
Seðlabanki Íslands framkvæmir ársfjórðungslega könnun á væntingum markaðsaðila, þar sem meðal annars er spurt um álit á taumhaldi peningastefnunnar. Á milli síðustu tveggja kannanna fjölgaði þeim markaðsaðilum sem telja að taumhald peningastefnunnar sé of laust, þ.e. að núverandi aðhaldsstig dugi ekki til að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma. Meirihluti svarenda telur taumhaldið áfram of þétt, þó þeim fari fækkandi.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Um 149 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í apríl, nokkurn veginn jafn margir og í sama mánuði í fyrra. Frá ársbyrjun er fjöldi erlendra ferðamanna einnig nánast sá sami og á sama tímabili í fyrra. Minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll virðist því áfram hafa lítil áhrif á komur ferðamanna til landsins, en kemur frekar fram sem samdráttur í tengifarþegum og færri utanlandsferðum Íslendinga. Ferðamálastofa birti einnig samantekt úr landamærakönnun 2025.
- Skráð atvinnuleysi var 4,6% í apríl, 0,7 prósentustigum meira en í apríl 2025.
- Í fyrri hluta vikunnar fóru fram verðmælingar vegna vísitölu neysluverðs í maí. Við spáum því að vísitalan lækki um 0,13% á milli mánaða og að verðbólga lækki niður í 4,9%.
- Verðbólga í Bandaríkjunum hækkaði upp í 3,8% í apríl og hefur ekki mælst meiri í þrjú ár. Um helming hækkunar verðlags á milli mánaða í apríl má rekja til hækkana á eldsneyti vegna stríðsátakanna við Persaflóa. Ársverðbólga mældist 2,4% í febrúar áður en stríðið hófst og 3,3% í mars.
- Amaroq, Heimar, Kvika, Oculis og Reitir birtu uppgjör. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk reglubundinni úttekt á framleiðsluaðstöðu Alvotech í Reykjavík.
- Landsbankinn hélt úboð á sértryggðum skuldabréfum. Lánamál ríkisins birtu niðurstöðu úr viðbótarútgáfu og Markaðsupplýsingar. Lánasjóður sveitarfélaga hélt skuldabréfaútboð. Reykjastræti stækkaði áður útgefinn skuldabréfaflokk.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.

21. ágúst 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.

19. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.

18. ágúst 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.

17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.

13. ágúst 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.

13. ágúst 2026
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.

10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.

4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.