Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 11. maí 2026

Starfandi samkvæmt skrám fækkaði á milli ára. Frjósemi á Íslandi síðastliðin tvö ár hefur ekki mælst minni síðan mælingar hófust. Í þessari viku fáum við m.a. ferðamannatölur og atvinnuleysi ásamt uppgjörum frá félögum.
Vikubyrjun
11. maí 2026

Vikan framundan

  • Í dag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi. Oculis og Reitir birta uppgjör.
  • Á morgun birta Heimar og Kvika banki uppgjör. Þá verða einnig birtar verðbólgutölur í Bandaríkjunum.
  • Á miðvikudag birtir Seðlabankinn könnun á væntingum markaðsaðila. Amaroq birtir uppgjör.

Mynd vikunnar

Fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu er einn helsti mælikvarði á frjósemi. Á síðasta ári jókst fjöldinn um tæplega 2% á milli ára á Íslandi. Á tímum Covid-19 jókst frjósemi hér á landi og mældist árið 2021 1,9 barn á hverja konu en hefur farið lækkandi síðan. Á síðustu tveimur árum hefur frjósemi á Íslandi mælst 1,56 og hefur ekki mælst minni frá því mælingar hófust. Til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma þarf frjósemi að mælast 2,1, en frjósemi hér á landi hefur ekki mælst svo há síðan árið 2012. Þrátt fyrir að frjósemi hér á landi hafi dregist saman er hún ennþá hærri en á hinum Norðurlöndunum.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 11. maí 2026 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Mánaðamót 2
1. júní 2026
Mánaðamót 1. júní 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
1. júní 2026
Vikubyrjun 1. júní 2026
Samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar mældist 2,7% hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða og verðbólga lækkaði því úr 5,2% í 5,1%.
29. maí 2026
Gagnaver og einkaneysla skýra hagvöxt
Landsframleiðsla jókst um 2,7% á milli ára að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins. Mest var framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar sem skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera. Einkaneysla jókst einnig á fjórðungnum þó hægt hafi á vexti hennar.
28. maí 2026
Verðbólga hjaðnar í 5,1%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða og verðbólga lækkar því úr 5,2% í 5,1%. Við höfðum spáð því að verðbólga myndi lækka í 4,9%. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á ársverðbólgu í mánuðinum en lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hafði mest áhrif til lækkunar. Án lækkunarinnar á virðisaukaskatti hefði verðbólga mælst 5,5%. Athygli vekur að verð á mat og drykk lækkaði á milli mánaða, annan mánuðinn í röð.
27. maí 2026
Seigla í ferðaþjónustunni þrátt fyrir mikla óvissu
Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.
Vikubyrjun
26. maí 2026
Vikubyrjun 26. maí 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti bankans um 0,25 prósentustig í síðustu viku, líkt og við höfðum spáð. Nú í vikunni koma verðbólgutölur og þjóðhagsreikningar.
Stýrivextir
20. maí 2026
Vextir hækkaðir og horfur versnandi
Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig annað skiptið í röð og segist tilbúin til að hækka vexti enn frekar. Efnahagshorfur hafa þó versnað verulega að mati bankans, en verðbólguspá var hækkuð í nýútgefnum Peningamálum og hagvaxtaspá lækkuð auk þess sem gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi. Kólnunin í hagkerfinu mun þó gera það að verkum að hættan á aukinni verðbólgu fram á við er minni.
19. maí 2026
Vísbendingar um að einkaneysla gefi eftir
Kortavelta íslenskra heimila dróst verulega saman á milli ára í apríl, eða um alls 5,8% að teknu tilliti til verðlags og gengis. Svo mikill samdráttur hefur ekki mælst síðan í febrúar 2021. Peningastefnunefnd fundar í dag vegna vaxtaákvörðunar á morgun, en við gerum áfram ráð fyrir 0,25 prósentustiga hækkun vaxta.
Vikubyrjun
18. maí 2026
Vikubyrjun 18. maí 2026
Í vikunni fram undan er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands og við spáum 0,25 prósentustiga hækkun. Fjöldi ferðamanna á fyrstu fjórum mánuðum ársins var svipaður og á sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum sem birtust í síðustu viku. Utanlandsferðum Íslendinga hefur aftur á móti fækkað töluvert. Atvinnuleysi heldur áfram að aukast á milli ára.
Stýrivextir
13. maí 2026
Spáum 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars.