Vikubyrjun 3. maí 2021
Á fyrsta ársfjórðungi var um þriðjungur allra fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu fyrstu kaup. Þetta hlutfall hefur aukist nær stöðugt frá upphafi gagnasöfnunar. Þetta er vísbending um að vel hafi tekist að auka framboð og mæta þörfum þeirra sem vilja komast inn á eigendamarkað.
3. maí 2021 - Hagfræðideild
Vikan framundan
- Á miðvikudag birta Arion banki og Íslandsbanki uppgjör.
- Á fimmtudag birta Landsbankinn og Reginn uppgjör.
Mynd vikunnar
Á fyrsta ársfjórðungi var um þriðjungur allra fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu fyrstu kaup. Þetta hlutfall hefur aukist nær stöðugt frá upphafi gagnasöfnunar. Þetta er vísbending um að vel hafi tekist að auka framboð og mæta þörfum þeirra sem vilja komast inn á eigendamarkað.
Það helsta frá síðustu viku
- Verðbólgan mældist 4,6% í apríl.
- Við birtum Hagsjár um framboð og eftirspurn á íbúðamarkaði og aukningu gistinátta í mars.
- Tólf mánaða hækkun launavísitölunnar mældist 10,6% í mars.
- Eik, Festi (fjárfestakynning), Icelandair , Marel (fjárfestakynning), Origo, Skeljungur, Síminn og VÍS birtu árshlutauppgjör.
- Ferðamálastofa birti skýrslu sína Ferðaþjónustan í tölum.
- Seðlabankinn hætti reglulegri gjaldeyrissölu.
- Kjaratölfræðinefnd birti vorskýrslu.
- Hagstofan birti kaupmátt ráðstöfunartekna á mann 2020, nýskráningar og gjaldþrot í mars, vinnumarkaðinn í mars og tilraunatölfræði um staðgreiðsluskyldar greiðslur.
- Lánamál ríkisins luku útboði ríkisvíxla.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
29. sept. 2023
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%.
28. sept. 2023
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,35% milli mánaða í september og við það jókst ársverðbólga úr 7,7% í 8,0%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun minna en við bjuggumst við en að öðru leyti var mælingin nokkurn veginn í takt við okkar spá. Framlag þjónustu og húsnæðis til ársverðbólgu jókst á hlut annarra liða. Við gerum enn ráð fyrir að verðbólga hjaðni næstu mánuði.
25. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst, samkvæmt gögnum sem HMS birti í síðustu viku. Vísitalan lækkaði þó nokkuð í júní og júlí og hækkunin kom því nokkuð á óvart. Í næstu viku ber hæst birting Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs á fimmtudag.
20. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst. Árshækkun vísitölunnar fór úr 0,8% í 2,0%. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 9,6% færri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Vísitalan er hærri en við gerðum ráð fyrir við gerð verðbólguspár fyrir septembermánuð og því færum við hana upp og spáum 7,8% ársverðbólgu í stað 7,7%.
18. sept. 2023
Um 282 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst. Ef sumarmánuðirnir eru teknir saman hafa aðeins einu sinni komið fleiri ferðamenn að sumri, árið 2018. Samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum Hagstofunnar jókst þjónustuútflutningur á fyrstu tveimur fjórðungum ársins um 21%, og má rekja allan þann vöxt til ferðaþjónustunnar.
18. sept. 2023
Í síðustu viku komu tölur um brottfarir frá Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og veltu greiðslukorta. Í þessari viku ber hæst vísitala íbúðaverðs, sem kemur á þriðjudag, og yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin verður út á miðvikudaginn.
15. sept. 2023
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
14. sept. 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
11. sept. 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.