10. ágúst 2026
Vikan framundan
- Í dag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll í júlí.
- Á morgun birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi í júlí.
- Á miðvikudag birtir Kvika uppgjör og verðbólgutölur verða birtar í Bandaríkjunum.
- Á fimmtudag birta Amaroq og SKEL fjárfestingafélag uppgjör.
- Á föstudag birtir Seðlabankinn niðurstöður úr könnun á væntingum markaðsaðila.
Mynd vikunnar
Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi. Fjölgunin er hófleg í sögulegu samhengi en minni en á sama tíma í fyrra. Þar vegur þyngst að aðflutningur umfram brottflutning var minni, sem rímar við kólnun á vinnumarkaði og hægari gang hagkerfisins. Eftir mikla spennu undanfarin ár hefur eftirspurn eftir vinnuafli minnkað og atvinnuleysi aukist, sem dregur úr þörf fyrir innflutt vinnuafl.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 4,1% í júlí. Engin ný störf urðu til í júlí en störfum fækkaði um 23 þúsund en það er töluvert verra en búist var við.
- JBT Marel og Oculis birtu uppgjör. Icelandair birti farþegatölur.
- Lánamál ríkisins luku sölu á ríkisbréfum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

27. ágúst 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.

26. ágúst 2026
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.

24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.

21. ágúst 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.

19. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.

18. ágúst 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.

17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.

13. ágúst 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.

13. ágúst 2026
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.

4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
