Viku­byrj­un 18. júlí 2022

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 176.000 í nýliðnum júnímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Fjöldi brottfara er nú 90% af fjöldanum í júní 2019.
Flugvöllur
18. júlí 2022 - Hagfræðideild

Vikan framundan

  • Á þriðjudag birtir Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs fyrir júní og degi síðar vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu.
  • Á fimmtudag birtir Landsbankinn ársfjórðungsuppgjör.
  • Hagstofan gefur út vísitölu neysluverðs á föstudaginn. Við spáum því að vísitalan hækki um 0,5% milli júní og júlí. Gangi spáin eftir fer ársverðbólga upp í 9,2%, en hún mældist 8,8% í júní. Auk vísitölu neysluverðs gefur Hagstofan út mánaðarlegar tölur um vinnumarkaðinn og launavísitölur.

Mynd vikunnar

Alls fóru 176.300 erlendir ferðamenn um Keflavíkurflugvöll í júní en til samanburðar var þessi fjöldi 194.900 í júnímánuði 2019, síðasta ár fyrir faraldurinn. Þessi fjöldi nú í júní er enn frekari staðfesting á því að uppsveiflan í íslenskri ferðaþjónustu er hafin á ný en fjöldinn nú er 90% af fjöldanum í sama mánuði 2019. Þetta hlutfall hefur leitað upp á við á þessu ári en það var t.a.m. 49% í janúar.

Efnahagsmál

  • 176.300 erlendir ferðamenn áttu leið um Keflavíkurflugvöll í júní, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og eyddu 28 mö.kr. hér á landi samkvæmt gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar.
  • Seðlabankinn birti gögn um veltu innlendra greiðslukorta sem jókst um rúm 10% að raunvirði milli ára í júní.
  • Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 9,1% í júní sem var nokkuð yfir væntingum.
  • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti mánaðarskýrslu fyrir júlí þar sem fram kemur að meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur lengst og hlutfall íbúða sem selst yfir ásettu verði lækkar.

Fjármálamarkaðir

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 18. júlí 2022 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Strönd
14. júní 2024
Óvæntur kraftur í kortaveltu í maí
Kortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára í maí, bæði innanlands og erlendis. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur