Vikan framundan
- Á miðvikudag birtir Ferðamálastofa brottfarir um Keflavíkurflugvöll og það verða birtar verðbólgutölur í Bandaríkjunum.
- Á fimmtudag birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi. Sama dag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
Mynd vikunnar
Umræða hefur myndast um sveiflur í gengi krónunnar í kjölfar skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Undirliggjandi tímabil skiptir höfuðmáli þegar svara á spurningunni hvort sveiflur í gengi íslensku krónunnar séu miklar eða ekki í samanburði við aðra gjaldmiðla. Sveiflur í gengi íslensku krónunnar á móti evru voru mun meiri en þeirrar sænsku eða norsku á árunum 2000 til 2011. Frá árinu 2012, eftir að breytingar urðu á umgjörð peningastefnu og fleiri stoðir bættust við útflutning landsins, birtist aftur á móti önnur mynd. Á þessu tímabili hefur íslenska krónan ekki sveiflast mikið meira en sænska eða norska krónan.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Á fyrsta ársfjórðungi mældist 32,1 ma.kr. halli á viðskiptum við útlönd, sem er talsvert betri niðurstaða en á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, þegar halli mældist rúmlega 70 ma.kr. Halli á vöruskiptajöfnuði minnkaði á milli ára og afgangur af þjónustujöfnuði jókst. Nú mældist halli á frumþáttatekjum en á sama tíma í fyrra mældist afgangur.
- Fjöldi starfandi hélst óbreyttur á milli ára í apríl.
- Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar og yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
- HMS kynnti fasteignamat fyrir 2027.
- Verðbólga á evrusvæðinu hækkaði úr 3,0% í 3,2% í maí, í samræmi við væntingar. Verðbólga á evrusvæðinu hefur nú verið yfir verðbólgumarkmiði þrjá mánuði í röð og hefur ekki mælst hærri síðan í september 2023.
- Atvinnuleysi í Bandaríkjunum hélst óbreytt á milli mánaða í maí. Störfum fjölgaði um 172 þúsund í mánuðinum.
- Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun birtu uppgjör. Stjórn Brims samþykkti kaup á Lýsi. Alvotech lagði inn umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæður við Simponi, Simponi Aria og Eylea.
- Alma íbúðafélag lauk stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki. Arion banki hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum ásamt skiptiútboði. Íslandsbanki gaf út græn skuldabréf í norskum og sænskum krónum. Ívera hélt útboð á tveimur nýjum skuldabréfaflokkum. Lánamál ríkisins lauk sölu á ríkisbréfum. Rarik lauk sölu á nýjum grænum skuldabréfaflokki.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).










