Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Áfram ró­legt á íbúða­mark­aði 

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og er talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur því lækkað um 2,4% á milli ára og maí er sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða. Velta á íbúðamarkaði hefur jafnframt verið talsvert minni það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
18. júní 2026

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Þetta er í fyrsta sinn á árinu sem vísitalan lækkar á milli mánaða, en hún stóð í stað í apríl. 

Verðlækkun á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu skýrir lækkun á vísitölunni í maí, en fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði lítillega.

Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu helst nokkuð stöðugt  

Lækkunin í maí skýrist einkum af 1,9% lækkun á verði sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu. Verð á sérbýli sveiflast mun meira en verð á fjölbýli, enda eru sérbýli færri og fjölbreyttari en íbúðir í fjölbýli. Skammtímabreytingar á verði sérbýlis segja því minna um undirliggjandi verðþrýsting á íbúðamarkaði. Bæði fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni hækkuðu um 0,3%. Verð á sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,4%. Þróun verðs á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, sem gefur skýrari mynd af undirliggjandi þróun íbúðaverðs, hefur haldist nokkuð stöðug á síðustu misserum. 

Ef íbúðaverð er skoðað með sama hætti og verðbólga, þ.e. þróun vísitölunnar síðustu tólf mánuði, hefur ársbreytingin haldist nokkuð stöðug það sem af er ári. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 2,2%. Frá því í ársbyrjun hefur ársbreytingin verið á bilinu 2,2-2,6%. Verðið hefur hækkað meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni síðustu 12 mánuði, eða um 2,5% á höfuðborgarsvæðinu og um 1,3% á landsbyggðinni.  

Raunverð hefur lækkað sex mánuði í röð 

Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað þó nokkuð minna en almennt verðlag. Raunverð íbúða er nú 2,4% lægra en á sama tíma í fyrra og hefur mælst lægra sex mánuði í röð. Raunverð fæst með því að taka tillit til verðbólgu og við notum vísitölu neysluverðs án húsnæðis til þess. Raunverð lækkar þannig á milli ára ef árshækkun íbúðaverðs er minni en árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis.  

Kaupsamningum fækkar um 15% á milli ára 

Velta á íbúðamarkaði er töluvert minni fyrstu fimm mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Alls voru um 750 kaupsamningar undirritaðir í maí, álíka margir og í apríl. Undirrituðum kaupsamningum fækkaði um 27% á milli ára í maí. Sé litið til fyrstu fimm mánaða ársins hefur kaupsamingum fækkað um 15% frá sama tímabili í fyrra. Þessar tölur benda til þess að enn sé rólegt á íbúðamarkaði. Verðþróun er afar hófstillt, þó enn virðist vera nokkur gangur í sölu. 

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.