Vikubyrjun 11. september 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.

11. september 2023
Vikan framundan
- Í dag birtir Ferðamálastofa talningu á fjöldi brottfara um Leifsstöð og Vinnumálastofnun birtir skráð atvinnuleysi.
- Á miðvikudag fáum við verðbólgutölur frá Bandaríkjunum.
- Á fimmtudag er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Evrópu.
- Á föstudaginn birtir Seðlabanki Íslands tölur um greiðslumiðlun.
- Í vikunni fara fram verðmælingar vegna septembermælingar vísitölu neysluverðs, en Hagstofan birtir töluna fimmtudaginn 28. september.
Mynd vikunnar
Frá 2010 hefur viðskiptajöfnuður við útlönd almennt komið best út á 3. ársfjórðungi. Það skýrist af því að júlí og ágúst eru stærstu mánuðirnir í ferðaþjónustu. Eina undantekningin á þessu tímabil var árið 2020, þegar aðgerðir vegna heimsfaraldursins voru hvað víðtækastar. Allt bendir til þess að ferðaþjónustan hafi náð vopnum sínum á ný og því er líklegt að 3. ársfjórðungur verði einnig sá fjórðungur sem kemur best út í ár.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Samkvæmt fundargerð Peningastefnunefndar greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillöguseðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á fundi nefndarinnar 21.-22. ágúst. Sá nefndarmaður vildi heldur hækka vexti um 0,25 prósentustig og sagðist telja að áhrif síðustu vaxtahækkana væru mögulega vanmetin í ljósi þess að vextir hefðu verið hækkaðir skarpt undanfarið og áhrif hækkananna væru ekki að fullu komin fram.+
- Smávægilegur afgangur var á viðskiptum við útlönd á öðrum ársfjórðungi. Eins og við var að búast var verulegur halli á vöruskiptajöfnuði, ríflegur afgangur á þjónustujöfnuðu, smávægilegur afgangur á frumþáttatekjum og smávægilegur halli á rekstrartekjum. Í lok fjórðungsins var hrein staða þjóðarbúsins rétt undir 30% af vergri landsframleiðslu.
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti ríkisreikning fyrir árið 2022.
- Reykjavíkurborg og Kópavogsbær birtu árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins.
- Eik birti uppgjör.
- Icelandair og Play birtu flutningstölur fyrir ágúst.
- Landsbankinn lauk sölu á grænum skuldabréfum í evrum, Íslandsbanki lauk útboði á víkjandi skuldabréfum í íslenskum krónum, Lánamál ríkisins luku útboði ríkisbréfa og Hagar héldu skuldabréfaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi umfjöllun og/eða samantekt er markaðsefni sem er ætlað til upplýsinga en felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningar eiga því ekki við, þar með talið bann við viðskiptum fyrir dreifingu. Umfjöllunin er unnin út frá opinberum upplýsingum frá aðilum sem Landsbankinn telur áreiðanlega, en bankinn getur ekki ábyrgst réttmæti upplýsinganna. Landsbankinn tekur enga ábyrgð á tjóni sem gæti hlotist af notkun upplýsinganna sem hér eru settar fram. Upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga eða -vísitalna sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef árangur byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur. Nánari upplýsingar um fyrri árangur fjármálagerninga og -vísitalna má finna á vef Landsbankans, þ.m.t. um ávöxtun síðastliðinna 5 ára. Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra á vef Landsbankans. Landsbankinn er viðskiptabanki sem starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og starfar undir leyfi og eftirliti fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.fme.is).Þú gætir einnig haft áhuga á

7. maí 2025
Ætla má að um þriðjungur íslenskra vara sem fluttar eru frá Íslandi til Bandaríkjanna sé undanþeginn þeim tollum sem nú eru í gildi, til dæmis lyf og flestar lækningavörur. Óvissa um framvindu mála í alþjóðaviðskiptum getur samt ein og sér leitt til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og ráðast síður í nýjar fjárfestingar. Á síðasta ári fór um 12% af vöruútflutningi Íslands til Bandaríkjanna.

5. maí 2025
Í apríl jókst verðbólga úr 3,8% í 4,2%, nokkuð umfram okkar spá um 4,0% verðbólgu. Velta samkvæmt VSK-skýrslum jókst á milli ára í flestum atvinnugreinum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Á fyrsta ársfjórðungi mældist hagvöxtur á evrusvæðinu en samdráttur í Bandaríkjunum. Í þessari viku er vaxtaákvörðun í Bandaríkjunum og einnig í Bretlandi.

2. maí 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

2. maí 2025
Ör fólksfjölgun og hækkun húsnæðisverðs hefur aukið eftirspurn eftir leiguíbúðum. Stærstur hluti Airbnb-íbúða er nú leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu. Frumvarp um hert skilyrði um skammtímaleigu hefur verið sett í samráðsgátt. Hömlur á skammtímaleigu gætu aukið framboð leiguíbúða og jafnvel söluframboð.

29. apríl 2025
Verðbólga mældist 4,2% í apríl og hækkaði úr 3,8% frá því í mars. Verðbólga var umfram okkar spá, einkum vegna þess að reiknuð húsaleiga og verð á matvörum hækkaði meira en við bjuggumst við.

28. apríl 2025
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti nýja efnahagsspá um páskana. Hagvaxtarhorfur í heiminum hafa verið færðar niður og AGS telur að spenna í alþjóðaviðskiptum og veruleg óvissa komi til með að draga úr umsvifum í heimshagkerfinu.

28. apríl 2025
Hagstofan birtir verðbólgutölur fyrir aprílmánuð á morgun og við búumst við að verðbólga hækki tímabundið upp í 4%. Í vikunni fáum við fyrstu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og fyrsta mat á hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi.

23. apríl 2025
Við teljum horfur á tiltölulega hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði næstu árin, 5,9% hækkun á þessu ári, 4,8% hækkun á næsta ári og 6,4% hækkun árið 2027. Til samanburðar hefur íbúðaverð hækkað um 9% á ári að jafnaði frá aldamótum, og að meðaltali um 13% á ári frá árinu 2021.

22. apríl 2025
Leiguverð hefur hækkað um 11,3% á síðustu tólf mánuðum, þó nokkuð meira en íbúðaverð sem hefur hækkað um 8% á sama tímabili. Hækkanir á íbúða- og leigumarkaði eru þó nokkuð umfram almennar verðhækkanir í landinu, en verðbólga mældist 3,8% í mars. Áfram er kraftur í innlendri neyslu, greiðslukortavelta heimila hefur aukist statt og stöðugt síðustu mánuði og var 1,8% meiri í mars síðastliðnum en í mars í fyrra.

16. apríl 2025
Sviptingar í alþjóðaviðskiptum gætu haft margvísleg áhrif á ferðaþjónustu hér á landi. Tollar gætu rýrt kaupmátt Bandaríkjamanna og haft áhrif á komur þeirra hingað til lands. Auk þess eru merki um að áhugi Evrópubúa á að heimsækja Bandaríkin fari dvínandi, sem gæti haft áhrif hingað heim, enda hafa Evrópubúar gjarnan komið við á Íslandi á leið sinni vestur um haf. Í nýrri hagspá gerum við ráð fyrir samdrætti í ferðaþjónustu á þessu ári, en að hún taki aftur við sér á næstu tveimur árum.