Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga yfir vænt­ing­um í nóv­em­ber

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 5,1% í 4,8%, eða um 0,3 prósentustig. Reiknuð húsaleiga hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar og flugfargjöld til útlanda mest áhrif til lækkunar.
28. nóvember 2024

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember og verðbólga hjaðnaði við það í 4,8%. Við spáðum 0,13% lækkun á milli mánaða og 4,5% verðbólgu. Flestir liðir voru í samræmi við spá okkar, fyrir utan reiknaða húsaleigu. Við spáðum því að liðurinn myndi lækka lítillega á milli mánaða, eða um 0,10%, en hann hækkaði aftur á móti um 0,9%. Verðbólga án húsnæðis lækkaði á milli mánaða, úr 2,8% í 2,7%.

Framlag reiknaðrar húsaleigu til ársverðbólgu lækkar áfram

Líkt og í október lækkar framlag reiknaðrar húsaleigu til ársverðbólgu nokkuð. Það skýrist af því að í október og nóvember í fyrra hækkaði reiknuð húsaleiga um rúm 2% í hvorum mánuði fyrir sig. Þótt reiknuð húsaleiga hafi hækkað meira en við spáðum nú í nóvember hækkaði hún mun minna en í sama mánuði í fyrra, eða um 0,9% á milli mánaða, og því hefur liðurinn töluverð áhrif til lækkunar á ársverðbólgu.

Frá því í september hefur verðbólga hjaðnað um 0,6 prósentustig og þar af má skýra 0,5 prósentustig af lækkuninni með lægri reiknaðri húsaleigu. Verðbólga án húsnæðis hefur enda einungis lækkað um 0,1 prósentustig, eða úr 2,8% í september í 2,7% nú í nóvember.

Þegar horft er á mánaðarbreytingu vísitölunnar eina og sér er það hækkun á reiknaðri húsaleigu sem kemur mest á óvart. Við höfðum spáð 0,1% lækkun á milli mánaða en hún hækkaði um 0,9%. Leiguverð nýrra samninga á höfuðborgarsvæðinu lækkaði tvo mánuði í röð, í ágúst og september, en hækkaði aftur í október og þá um 1,8%, samkvæmt vísitölu leiguverðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sú vísitala mælir breytingar á leiguverði nýrra samninga, en Hagstofan mælir, með nokkurri einföldun, meðalleiguverð allra gildra samninga hvers mánaðar. Enn eru ekki komnar mjög margar mælingar með nýrri aðferð Hagstofunnar og erfitt hefur því reynst að finna hvað hefur mest áhrif á þróun þessa liðar.

Helstu liðir vísitölunnar

  • Flugfargjöld til útlanda höfðu mest áhrif á vísitöluna til lækkunar, en liðurinn lækkaði um 11,7% á milli mánaða (-0,23% áhrif).
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9% á milli mánaða (+0,17% áhrif).
  • Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði lítillega á milli mánaða, um 0,04% (-0,01% áhrif).
  • Föt og skór lækkuðu á milli mánaða, um 0,27% (-0,01% áhrif).
  • Húsnæði án reiknaðrar leigu hækkaði um 1,0%, (+0,10% áhrif) sem skýrist mest af hækkun á greiddri húsaleigu en einnig af hækkun á rafmagnsverði.

Matarkarfan og fatnaður, bensín og flugfargjöld lækka í nóvember

Nokkrir liðir lækkuðu á milli mánaða í nóvember, þó lækkunin hafi ekki verið mikil. Verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 0,04% á milli mánaða, en við höfðum spáð 0,2% hækkun. Matarkarfan hækkaði nokkuð meira í síðasta mánuði, eða um 0,85%, og gerðum við aftur ráð fyrir hækkun nú þó hún yrði minni.

Verð á fötum og skóm lækkuðu einnig lítillega, eða um 0,27%. Við höfðum spáð smá hækkun, en þó minni en ella þar sem við töldum að áhrifa tilboðsdaga myndi gæta í mánuðinum. Þau áhrif voru aðeins meiri en við höfðum gert ráð fyrir.

Almennt má sjá nokkuð skýra árstíðarsveiflu á flugfargjöldum til útlanda. Þau eru hæst í júlí, lækka svo með haustinu og hækka svo aftur fyrir jól og páska. Flugfargjöld hækkuðu um 6,6% í síðasta mánuði en lækkuðu svo aftur nú í nóvember um 11,7%, aðeins minna en við spáðum. Það er nú um 6% dýrara að fljúga til útlanda en í nóvember í fyrra.

Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku. Verðbólgan hjaðnaði svo aðeins um 0,3 prósentustig í nóvember, en ekki 0,6 prósentustig eins og við væntum. Þvert á væntingar eru raunstýrivextir miðað við liðna verðbólgu því örlítið lægri nú en þeir voru fyrir vaxtaákvörðunina, og taumhaldið því veikara á þann mælikvarða. Á kynningarfundi nefndarinnar eftir síðustu vaxtaákvörðun mátti greina að nefndinni þætti stafa minni hætta af hertu taumhaldi en lausara. Næsta vaxtaákvörðun er ekki áætluð fyrr en 5. febrúar og því stýrist taumhaldið næstu mánuði af þróun verðbólgunnar og verðbólguvæntinga.  

Væntum núna aðeins hægari hjöðnunar en áður

Við gerum núna ráð fyrir að vísitalan hækki um 0,23% í desember, lækki um 0,26% í janúar og hækki síðan um 0,85% í febrúar. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,6% í desember, 4,5% í janúar og 4,0% í febrúar.  Spáin er nokkuð hærri en síðasta spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni, en þá spáðum við 4,3% í desember, 4,1% í janúar og 3,5% í febrúar.  Munurinn milli spáa skýrist helst af tvennu. Annars vegar hækkar spáin til næstu þriggja mánaða vegna þess að nóvembertalan var hærri en við væntum og hins vegar gerum við nú ráð fyrir meiri hækkunum á reiknaðri húsaleigu en áður. Eins og fram hefur komið er ekki komin mikil reynsla á mælingar Hagstofunnar á reiknaðri húsaleigu og því vandasamt að spá fyrir um þann lið.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.
Vikubyrjun
28. sept. 2026
Vikubyrjun 28. september 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.
21. sept. 2026
Nær jafnmargir ferðamenn þrátt fyrir minna flug
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.
Vikubyrjun
21. sept. 2026
Vikubyrjun 21. september 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð. 
18. sept. 2026
Kortavelta heimilanna dróst saman í ágúst
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.