Verð­bólga mæld­ist 7,2% í apríl

Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 1,25% milli mánaða í apríl og mælist verðbólgan nú 7,2% samanborið við 6,7% í mars. Verðbólgan hefur ekki mælst hærri síðan í maí 2010 þegar hún var 7,5%. Þá var verðbólguskot vegna hrunsins að renna sitt skeið.
Matvöruverslun
28. apríl 2022 - Hagfræðideild

Mest áhrif til hækkunar milli mánaða höfðu reiknuð húsaleiga (2,4% milli mánaða, 0,45% áhrif), verð á flugfargjöldum til útlanda (22,9% milli mánaða, 0,37% áhrif) og verð á mat og drykkjarvörum (1,4% milli mánaða, 0,13% áhrif). Hækkunin milli mánaða var mun meiri en við áttum von á, en við spáðum 0,7%. Munar þar langmest um að flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga hækkuðu mun meira en við áttum von á og skýra þessir tveir liðir svo gott sem alla spáskekkjuna.

Ársverðbólgan hækkaði um 0,6 prósentustig milli mánaða. Af þessari 0,6 prósentustiga breytingu skýrast 0,5 prósentustig af því að framlag þjónustu til ársverðbólgu hækkaði úr 1,2 prósentustigum í 1,7 prósentustig. Hér spila væntanlega inn í miklar hækkanir á flugfargjöldum. Stóra myndin varðandi ársverðbólguna núna er að rúmlega 20% skýrist af innfluttri verðbólgu, þar af nokkurn veginn jafnt af annars vegar bensíni og hins vegar öðrum innfluttum vörum. Rúmlega 40% skýrist af húsnæðisliðnum og tæplega 40% skýrist af öðrum innlendum vörum og þjónustu.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verðbólga mældist 7,2% í apríl

Þú gætir einnig haft áhuga á
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur