Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 12. maí 2025

Brottfarir um Keflavíkurflugvöll hafa aldrei verið jafnmargar í aprílmánuði eins og í apríl síðastliðnum og erlendir ferðamenn voru 6,5% fleiri en í apríl í fyrra. Skráð atvinnuleysi var 3,9% í apríl og minnkaði um 0,3 prósentustig frá því í mars. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum en Englandsbanki lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig. Báðar ákvarðanir voru í takt við væntingar.
Sendibifreið og gámar
12. maí 2025

Vikan framundan

  • Í dag birta Heimar afkomutilkynningu og verðbólgutölur verða birtar í Bandaríkjunum.
  • Á þriðjudag birtir Eimskip uppgjör.
  • Á miðvikudag birtir Seðlabankinn niðurstöður úr könnun á væntingum markaðsaðila og Amaroq birtir uppgjör.
  • Á fimmtudag birta Reitir og Sjóvá uppgjör.
  • Á föstudag birtir Seðlabankinn gögn um greiðslumiðlun í apríl.

Mynd vikunnar

Vöruútflutningur hefur verið kröftugur á fyrstu fjórum mánuðum ársins og útflutningsverðmæti hafa aukist um 16,2% frá sama tímabili í fyrra, á föstu gengi. Flestar vöruútflutningsgreinar virðast sækja í sig veðrið. Verðmæti álútflutnings hafa til að mynda aukist um 26% á milli ára, sé leiðrétt fyrir gengi, enda þurftu álfyrirtækin að búa við raforkuskerðingar í upphafi síðasta árs. Heimsmarkaðsverð á áli hefur á sama tíma hækkað um 16%. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jukust um 11,7% frá sama tíma í fyrra og verðmæti eldisfisks jukust um 9,4%, á föstu gengi.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 12. maí 2025 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
Kortagreiðsla
19. júní 2025
Kortavelta Íslendinga erlendis eykst og veldur auknum greiðslukortahalla
Kortavelta jókst um 6,8% á milli ára í maí að raunvirði þar af jókst hún um 21% erlendis. Það sem af er ári hefur kortavelta aukist um 5,5% frá sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir í maímánuði en nú í ár. Greiðslukortajöfnuður var neikvæður um 4,2 ma.kr. sem er töluvert meiri halli en í maí í fyrra.
Hús í Reykjavík
16. júní 2025
Vikubyrjun 16. júní 2025
Í síðustu viku fór fram uppgjör við eigendur HFF-bréfa. Erlendum ferðamönnum fjölgaði aðeins á milli ára í maí og atvinnuleysi jókst á milli ára. Í vikunni fram undan birtir HMS vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu.
12. júní 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í júní
Við spáum því að verðbólga aukist lítillega í júní og mælist 3,9%. Verðbólga helst líklega nær óbreytt í sumar en eykst svo aðeins með haustinu, þegar einskiptisliðir vegna skólagjalda og skólamáltíða detta út úr tólf mánaða taktinum. Við gerum áfram ráð fyrir 4,0% verðbólgu í árslok.
Bílar
11. júní 2025
Merki um að bílakaup hafi aukist á ný
Eftir hægagang í bílaviðskiptum á síðasta ári virðast þau hafa færst í aukana í byrjun þessa árs. Um 53% fleiri fólksbílar hafa verið nýskráðir til einkanota á fyrstu fimm mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Um 21% þeirra bíla sem hafa verið nýskráðir á þessu ári eru hreinir rafmagnsbílar.
Peningaseðlar
10. júní 2025
Vikubyrjun 10. júní 2025
Viðskiptahalli Íslands hefur aldrei verið jafnmikill og á síðustu tveimur fjórðungum. Þá hefur halli á vöruviðskiptum aldrei verið meiri en í maí og hið sama má segja um innflutningsverðmæti, samkvæmt Hagstofu Íslands. Í næstu viku verða birtar atvinnuleysistölur og brottfarir um Keflavíkurflugvöll í maí.
Flutningaskip
6. júní 2025
Áfram verulegur halli á viðskiptum við útlönd
Alls var 59,5 ma.kr. halli á viðskiptum við útlönd á fyrsta fjórðungi ársins. Viðskiptahalli Íslands hefur aldrei verið jafnmikill og á síðustu tveimur fjórðungum. Hann skýrist að verulegu leyti af stórfelldum innflutningi á tölvubúnaði vegna uppbyggingar á gagnaverum. Erlend staða þjóðarbúsins breyttist lítið á fjórðungnum.
Strönd
5. júní 2025
Stóraukin útgjöld til hernaðar- og varnarmála um allan heim
Útgjöld til hernaðar- og varnarmála hafa stóraukist á síðustu árum, einkum í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Leiðtogafundur NATO verður haldinn í Haag í lok mánaðarins og talið er að viðmið um útgjöld aðildarríkja til varnarmála verði hækkað til muna. Enn er óljóst upp að hvaða marki Ísland gæti þurft að auka varnartengd útgjöld. Aukin hernaðaruppbygging litar hagvaxtar- og verðbólguhorfur á heimsvísu og getur haft margþætt efnahags- og samfélagsleg áhrif.
2. júní 2025
Mánaðamót 2. júní 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Gróðurhús
2. júní 2025
Vikubyrjun 2. júní 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,2% í 3,8% í apríl og landsframleiðsla jókst um 2,6% á milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 11,6% á milli ára í apríl. Í vikunni birtir Seðlabankinn viðskiptajöfnuð við útlönd og fundargerð peningastefnunefndar.
Lyftari í vöruhúsi
30. maí 2025
2,6% hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi en samdráttur í fyrra
2,6% hagvöxtur mældist á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar sem var birt í morgun. Samkvæmt endurskoðuðum þjóðhagsreikningum mældist 0,7% samdráttur á síðasta ári en ekki 0,5% hagvöxtur eins og áður var áætlað.