Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga hjaðn­ar og mæl­ist 3,8%

Verðbólga mældist 3,8% í maí og hjaðnar úr 4,2% frá því í apríl. Verðbólga var örlítið undir okkar spá, einkum vegna þess að flugfargjöld til útlanda lækkuðu nokkuð á milli mánaða. Við eigum von á að verðbólga fari lægst í 3,6% í júlí, en hækki síðan aftur upp í 3,8% í ágúst.
Epli
28. maí 2025

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í maí og við það lækkaði verðbólga úr 4,2% í apríl í 3,8%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis minnkaði einnig töluvert, eða úr 3,2% í 2,7% í maí.

Það sem kom helst á óvart í maímælingunni var meiri lækkun á flugfargjöldum til útlanda en við höfðum spáð. Liðurinn lækkaði um 7,3% en ekki 1,1% eins og við spáðum. Verð á póst- og símaþjónustu hækkaði einnig nokkuð óvænt um 3,5%, sem skýrist helst af töluverðri hækkun á verði internettenginga í mánuðinum. Verð á mjólk og mjólkurvörum hækkaði í takt við hækkun verðlagsnefndar búvara, eins og við spáðum.

Framlag innfluttra vara minnkar aftur

Samsetning ársverðbólgunnar breyttist á milli mánaða. Framlag innfluttra vara til ársverðbólgu minnkaði nokkuð á milli mánaða eftir að hafa aukist í síðasta mánuði. Lægra framlag innfluttra vara í maí skýrist ekki síst af lægra framlagi húsgagna og heimilisbúnaðar og nýrra bíla. Framlag flugfargjalda lækkaði í maí, en það jókst líka töluvert í apríl. Þá hækkaði verð á flugfargjöldum til útlanda töluvert, enda páskarnir í þeim mánuði. Framlag húsnæðisliðarins er nánast óbreytt á milli mánaða.

Helstu liðir vísitölunnar:

  • Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði aftur, nú um 0,7% á milli mánaða (+0,11% áhrif), eins og við spáðum. Mest hækkaði verð á mjólkurvörum, en verðlagsnefnd búvara tilkynnti um hækkun á verði til bænda sem tók gildi í verðsöfnunarvikunni. Verð á kjöti hækkaði nokkuð minna nú í maí en síðustu mánuði, en verð á kaffi hélt áfram að hækka.
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,7% á milli mánaða (0,15% áhrif), aðeins umfram okkar spá um 0,5% hækkun.
  • Póst- og símaþjónusta hækkaði um 3,6% á milli mánaða í maí, sem kom okkur nokkuð á óvart. Hækkunina má að mestu rekja til hækkunar á verði internetþjónustu, en hún hækkaði um 11,4% sem er mesta hækkun sem mælst hefur síðan í mars 2004.
  • Föt og skór hækkuðu um 1,1% á milli mánaða (0,04% áhrif). Við höfðum spáð 0,7% hækkun. Verð á fötum og skóm er enn lægra en það var fyrir útsölur. Við gerum nú ráð fyrir að liðurinn hækki rólega fram að sumarútsölum.
  • Sem fyrr segir lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 7,3% á milli mánaða (-0,17% áhrif). Lækkunin var nokkuð umfram okkar spá.

Horfur á 3,9% verðbólgu í ágúst

Við gerum nú ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,60% í júní, 0,21% í júlí og 0,28% í ágúst. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 3,9% júní, 3,6% í júlí og 3,8% í ágúst. Spáin er aðeins lægri en sú sem við birtum í verðkönnunarvikunni í apríl þar sem við gerðum ráð fyrir 4,0% í júní, 3,7% í júlí og 3,9% í ágúst. Munurinn á spánum skýrist að mestu af því að maímælingin var lægri en við bjuggumst við.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
15. jan. 2026
Spáum 5,1% verðbólgu í janúar
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30% á milli mánaða í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 4,5% í 5,1%. Janúarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í mánuðinum en breytingar á gjaldtöku ökutækja hafa mest áhrif til hækkunar, samkvæmt spánni. Mikil óvissa er þó um hvernig Hagstofan tekur breytingarnar inn í verðmælingar.
Smiður
13. jan. 2026
Atvinnuleysi eykst en kortavelta líka
Atvinnuástandið hefur versnað smám saman og eftirspurn eftir vinnuafli er minni en áður. Atvinnuleysi hefur aukist hratt og mældist 4,4% í desember, en svo mikið hefur atvinnuleysi ekki mælst í rúmlega þrjú og hálft ár. Þessi þróun styður við markmið Seðlabankans um að draga úr þenslu í hagkerfinu og vinna bug á verðbólgu. Á sama tíma heldur neysla landsmanna áfram að aukast með hverjum mánuðinum, en heildarkortavelta hefur aukist um 6% á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs frá sama tímabili árið áður.
Bílar
12. jan. 2026
Breytt gjaldtaka af bílum gæti aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig
Breytingar á gjaldtöku hins opinbera af rekstri og kaupum ökutækja gætu aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig. Óvíst er hvort áhrifin komi fram að öllu leyti í janúar eða dreifist yfir næstu mánuði, en telja má að það velti ekki síst á eftirspurn eftir bílum í byrjun árs.
Rafbíll í hleðslu
12. jan. 2026
Vikubyrjun 12. janúar 2026
Skráð atvinnuleysi hélt áfram að aukast í desember og var 0,6 prósentustigum meira en á sama tíma árið áður. Álíka margir erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í fyrra og síðustu tvö ár á undan en utanlandsferðir Íslendinga voru 18% fleiri í fyrra en árið á undan. Þó nokkur óvissa ríkir um verðbólgumælingu janúarmánaðar, ekki síst í tengslum við breytta gjaldtöku á innflutningi og rekstri bíla. Við gefum út verðbólguspá næsta fimmtudag.
5. jan. 2026
Mánaðamót 5. janúar 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vöruhótel
5. jan. 2026
Vikubyrjun 5. janúar 2026
Verðbólgan kom aftan að landsmönnum stuttu fyrir jól og fór úr 3,7% í 4,5%. Verðbólga í desember var aðeins 0,3 prósentustigum minni en í upphafi síðasta árs þegar hún mældist 4,8%. Á sama tímabili lækkuðu stýrivextir um 1,25 prósentustig, úr 8,50% í 7,25%.
Bananar
22. des. 2025
Verðbólgumælingin ekki jafnslæm og hún virðist í fyrstu
Verðbólga rauk upp í 4,5% í desember eftir að hafa hjaðnað verulega í nóvember og mælst 3,7%. Rífleg hækkun á flugfargjöldum til útlanda skýrir stóran hluta hækkunarinnar, en einnig töluverð gjaldskrárhækkun á hitaveitu í desember. Aukin verðbólga skýrist þannig af afmörkuðum, sveiflukenndum liðum og ekki er að greina merki um að undirliggjandi verðbólguþrýstingur hafi aukist að ráði.
Vélsmiðja Guðmundar
22. des. 2025
Vikubyrjun 22. desember 2025
Fasteignamarkaðurinn fer enn kólnandi, ef marka má skýrslu sem HMS gaf út í síðustu viku. Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6% á milli ára í nóvember. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 1,9% á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt Hagstofunni. Í dag birtir Hagstofan verðbólgutölur.
Flugvél
15. des. 2025
Vikubyrjun 15. desember 2025
Færri erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í nóvember í ár en í nóvember í fyrra en utanlandsferðum Íslendinga hélt áfram að fjölga. Skráð atvinnuleysi hefur aukist þó nokkuð á síðustu mánuðum og var 4,3% í nóvember.
11. des. 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í desember
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.