Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Verð­bólga eykst í takt við vænt­ing­ar

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,11% á milli mánaða í september og verðbólga jókst úr 3,8% í 4,1%. Hækkunin skýrist að langmestu leyti af því að lækkunaráhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða duttu nú úr 12 mánaða taktinum. Fátt í septembermælingunni kom á óvart en við spáðum 0,07% hækkun á vísitölunni og 4,1% verðbólgu. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði áfram á þessu bili út árið og verði 4,0% í árslok.
Litríkir bolir á fataslá
25. september 2025

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,11% á milli mánaða og verðbólga jókst úr 3,8% í 4,1%. Talan var nokkurn veginn eins og við bjuggumst við, en við spáðum 0,07% hækkun á VNV á milli mánaða og 4,1% verðbólgu. Flestir liðir breyttust eins og við gerðum ráð fyrir. Helsti munurinn á spánni og mælingunni var að föt og skór hækkuðu minna en við spáðum sem þýðir að verð á fötum og skóm er enn lægra en það var fyrir sumarútsölur. Reiknuð húsaleiga hækkaði aftur á móti umfram spána. Verðbólga án húsnæðis hækkaði einnig á milli mánaða, úr 2,8% í 3,2%.

Framlag flestra liða jókst

Framlag flestra liða til ársverðbólgu jókst á milli mánaða nú í september, að innfluttum vörum undanskildum. Framlag almennrar þjónustu jókst langmest, en þar undir flokkast skólamáltíðirnar, sem voru, sem fyrr segir, gerðar gjaldfrjálsar í fyrra. Lækkunaráhrifin af því detta nú út úr 12 mánaða taktinum. Framlag innfluttra vara dróst saman, sem skýrist að mestu af því að útsölur á fötum og skóm hafa enn ekki gengið alveg til baka og hafa því áhrif til lækkunar á ársverðbólgu. Líklega skýrist það að hluta til af sterkara gengi. Á móti jókst framlag innlendra vara, sem skýrist að mestu af auknu framlagi innlendra matvara, en verð á mjólkurvörum hækkaði um tæplega 1% í mánuðinum og verð á kjöti um 0,4%. Árshækkun beggja vöruflokka er því nokkuð yfir ársverðbólgu, eða rúmlega 8%.

Helstu liðir vísitölunnar:

  • Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði meira í september en síðustu mánuði, eða um 0,4%. Við spáðum 0,35% hækkun. Hækkun á mjólkurvörum skýrir stærstan hluta hækkunar matvöru á milli mánaða. Framlag matvöru til ársverðbólgu eykst vegna þess að í september í fyrra lækkaði matarkarfan um tæplega 0,2%.
  • Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,89% á milli mánaða, nokkuð umfram okkar spá um 0,5% hækkun. Liðurinn sveiflast þó áfram á þrengra bili en áður. Þrátt fyrir meiri hækkun nú gerum við áfram ráð fyrir um 0,5% hækkun að meðaltali næstu mánuði, meðal annars vegna þess að vísitölutenging leigusamninga næstu mánuði ætti að hafa lítil áhrif til hækkunar.
  • Sumarútsölur á fötum og skóm voru nokkuð slakar í ár, en liðurinn lækkaði aðeins um 4,8% í júlí, töluvert minna en að meðaltali síðustu ár. Aftur á móti hækkaði verð á fötum og skóm aðeins um 0,7% í ágúst og um 2.9% nú í september. Verð á fötum og skóm er því ennþá lægra en það var fyrir sumarútsölur. Við gerum því ráð fyrir aðeins meiri hækkun í október en í fyrri spá.
  • Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 15,4% í september, aðeins meira en við spáðum. Það kostaði því nokkurn veginn það sama að fljúga til útlanda í september nú og í fyrra, en til samanburðar var það um 1% ódýrara í ágúst síðastliðnum en í ágúst í fyrra. Framlag liðarins kemur því örlítið til hækkunar í september.

Gerum ráð fyrir örlítið meiri verðbólgu en í fyrri spá

Það er lítið í mælingunni sem breytir verðbólguhorfum til næstu mánaða. Við gerum ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,35% í október, lækki um 0,06% í nóvember og hækki um 0,37% í desember. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,2% í október og 4,0% í nóvember og desember. Spáin er aðeins hærri en síðasta spá sem við birtum í verðkönnunarvikunni, eða sem nemur um 0,1 prósentustigi. Mest áhrif hefur hærri mæling á verðbólgunni nú en við höfðum spáð. Breytingin er þó mjög lítil og horfurnar að mestu óbreyttar.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.