Hagvöxtur mældist 2,7% á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar, á sama tíma og verðbólga lækkaði í 5,1% í maí. Þrátt fyrir jákvæðar fyrirsagnir benda ýmsar undirliggjandi tölur til þess að hagkerfið sé að kólna.
Í þættinum var meðal annars fjallað um áhrif gagnavera á hagvöxt, samdrátt í fjárfestingu, þróun húsnæðismarkaðarins og nýjustu verðbólgutölur. Þá var rætt um hvort háir vextir séu loksins farnir að skila tilætluðum árangri og hvaða þættir muni ráða mestu um verðbólgu og vaxtaþróun næstu mánuði.
Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson, hagfræðingar hjá greiningardeild Landsbankans, ræða stöðu efnahagsmála og horfur fram undan við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um efnahagsmál og annað sem tengist starfsemi bankans frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um efnahagsmál og bankastarfsemi.










