Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 4,1% verð­bólgu í sept­em­ber

Við spáum því að verðbólga aukist í september og mælist 4,1%. Aukin verðbólga skýrist aðallega af því að í september í fyrra voru máltíðir í grunnskólum gerðar ókeypis og lækkunaráhrifin af því detta nú út úr ársverðbólgunni. Verðhækkun á mjólkurafurðum leiðir til meiri hækkunar á matvöruverði en síðustu mánuði. Ró yfir húsnæðismarkaðnum heldur aftur af hækkunum á reiknaðri húsaleigu en útsölulok hafa áhrif til hækkunar í mánuðinum, gangi spáin eftir.
Bakarí
11. september 2025

Verðbólga mældist undir væntingum í ágúst, eða 3,8% - við spáðum 4,0%. Verðbólga hefur haldist á þröngu bili á síðustu mánuðum og gangi spá okkar eftir verður september áttundi mánuðurinn í röð með verðbólgu á bilinu 3,8% til 4,2%. Raunar teljum við að verðbólga verði á því bili út þetta ár og mælist 3,9% í árslok. Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki hóflega í september, um 0,07%, en hækkunin myndi duga til þess að ársverðbólga færi úr 3,8% í 4,1%. Það skýrist af óvenju mikilli lækkun vísitölunnar í september í fyrra þegar máltíðir í grunnskólum voru gerðar gjaldfrjálsar. Flugfargjöld lækka eins og venjulega í september og munu hafa mest áhrif til lækkunar á milli mánaða. Á móti gerum við ráð fyrir að útsölulok á fötum og skóm gangi alveg til baka í september og muni hafa mest áhrif til hækkunar á vísitölunni í mánuðinum. Hagstofan birtir septembermælingu vísitölu neysluverðs þann 25. september nk.

Verð á mjólkurafurðum leiðir hækkanir á matvöru

Verð á mat og drykkjarvörum hefur hækkað umfram almennt verðlag síðasta árið, en í júlí og ágúst hægði verulega á hækkun matvöru þegar verð á matarkörfunni hækkaði um 0,01% og 0,06%. Leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ hefur hækkað um 0,06% það sem af er september. Síðustu mánuði hefur verðlagseftirlitið mælt minni hækkun á milli mánaða en Hagstofan. Við gerum nú ráð fyrir að matarkarfan hækki um 0,35% í september. Verðlagsnefnd búvara birti nýlega ákvörðun um 1,33% hækkun á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara. Ákvörðunin tók gildi 8. september, í verðsöfnunarviku Hagstofunnar, þannig að hækkunin kemur inn í mælingar fyrir mánuðinn.

Spáum aðeins minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu

Spáin gerir ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5% á milli mánaða næstu mánuði. Erfitt hefur reynst að spá fyrir um sveiflur á milli einstaka mánaða en liðurinn sveiflast samt á þrengra bili en áður. Undanfarna mánuði hefur rólegri taktur á fasteignamarkaði skilað minni hækkunum á reiknaðri húsaleigu. Við gerum einnig ráð fyrir að vísitölutenging leigusamninga hafi minni áhrif til hækkunar allra næstu mánuði. Við gerum ráð fyrir að liðurinn „annað vegna húsnæðis“ hækki um 0,4% og að alls verði áhrif húsnæðiskostnaðar 0,14 prósentustig til hækkunar á vísitölunni.

Sumarútsölur ganga alveg til baka

Eftir faraldurinn hafa sumarútsölur verið nokkuð dræmari en fyrir faraldur. Mæling Hagstofunnar fyrir júlí sl. sýndi 4,9% verðlækkun á milli mánaða, slökustu sumarútsölur frá því á Covid-árinu 2020. Við gerðum ráð fyrir að útsölurnar myndu ganga til baka í tveimur jafnstórum skrefum í ágúst og september. Útsölurnar gengu þó töluvert minna til baka í ágúst en við gerðum ráð fyrir, þar sem liðurinn hækkaði aðeins um tæplega 0,7%. Við gerum ráð fyrir að útsölurnar gangi alveg til baka í september og liðurinn hækki því um 4,2%.

Flugfargjöld lækka í september og bensínverð lækkar áfram

Það sem af er ári hefur verð á flugfargjöldum til útlanda verið að meðaltali nokkuð svipað og í fyrra.  Flugfargjöld til útlanda hækkuðu þó skarpt í júní og júlí og voru þá tæplega 5% hærri en í júlí í fyrra. Á móti lækkuðu svo flugfargjöld í ágúst töluvert og þá var aftur orðið ódýrara að fljúga en á sama tíma í fyrra. Flugfargjöld lækka alla jafna bæði í ágúst og september og við spáum því að flugfargjöld til útlanda lækki um 14,2% á milli mánaða í september sem þýðir að flugmiðar verði um 2% dýrari en í fyrra.

Samkvæmt verðmælingu okkar lækkar bensín um 0,4% á milli mánaða í september, aðeins minna en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá.

Spá um þróun VNV í ágúst 2025

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,4% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,1% 0,00%
Föt og skór 3,7% 4,2% 0,15%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,5% 0,4% 0,04%
Reiknuð húsaleiga 20,3% 0,5% 0,10%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,7% 0,7% 0,03%
Heilsa 4,1% 0,1% 0,00%
Ferðir og flutningar (annað) 3,9% 0,1% 0,00%
- Kaup ökutækja 6,1% 0,0% 0,00%
- Bensín og díselolía 3,5% -0,4% -0,01%
- Flugfargjöld til útlanda 2,2% -14,1% -0,36%
Póstur og sími 1,6% -0,1% 0,00%
Tómstundir og menning 10,8% 0,6% 0,06%
Menntun 0,9% 0,9% 0,01%
Hótel og veitingastaðir 5,4% -0,5% -0,03%
Aðrar vörur og þjónusta 5,2% 0,3% 0,01%
Alls 100,0%   0,07%

Verðbólga verði 3,9% í árslok

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% í september og um 0,30% í október, lækki síðan um 0,09% í nóvember og hækki svo um 0,37% í desember. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,1% í september og október og 3,9% í bæði nóvember og desember. Spáin er aðeins hærri en síðasta spá, sem við birtum daginn sem Hagstofan birti verðbólgutölur í ágúst. Breytingin skýrist helst af nýlegri ákvörðun verðlagsnefndar búvara, sem tók gildi nú í verðsöfnunarvikunni.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.