Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 3,9% verð­bólgu í júní

Við spáum því að verðbólga aukist lítillega í júní og mælist 3,9%. Verðbólga helst líklega nær óbreytt í sumar en eykst svo aðeins með haustinu, þegar einskiptisliðir vegna skólagjalda og skólamáltíða detta út úr tólf mánaða taktinum. Við gerum áfram ráð fyrir 4,0% verðbólgu í árslok.
12. júní 2025

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% í júní og að ársverðbólga aukist lítillega, úr 3,8% í 3,9%. Mestu áhrifin á mánaðarhækkun vísitölunnar koma frá flugfargjöldum til útlanda, en reiknuð húsaleiga vegur næstþyngst. Verðlækkun á bensíni dregur lítillega úr mánaðarhækkuninni, gangi spáin eftir. Þá gerum við ráð fyrir að það hægi á verðhækkun á matvörum í júní, eftir talsverðar hækkanir undanfarna mánuði.

Hægir á hækkun matvöruverðs

Verð á matvöru hefur hækkað jafnt og þétt frá áramótum og verið yfir almennri verðbólgu frá því í febrúar. Hækkandi verð á kjöti, grænmeti og sælgæti vó þyngst fram í apríl og í maí hækkaði einnig verð á mjólkurvörum í kjölfar ákvörðunar Verðlagsnefndar búvara um hækkun mjólkurverðs til bænda. Við gerum ráð fyrir að í júní hægi á verðhækkunum. Við byggjum það meðal annars á því að leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ, sem hefur haft gott spágildi, bendir aðeins til 0,27% hækkunar frá því í maí.

Ár með nýrri aðferð

Í júní verður liðið ár frá því að ný aðferð var tekin upp við mat á reiknaðri húsaleigu í vísitölu neysluverðs. Eftir breytinguna byggir útreikningurinn ekki lengur á þróun íbúðaverðs heldur á þróun leiguverðs. Vandasamt hefur reynst að spá fyrir um mánaðarbreytingar á reiknaðri húsaleigu, en hún sveiflast mun minna á milli mánaða eftir að nýja aðferðin var tekin upp. Því má nú almennt gera ráð fyrir tiltölulega jöfnum hækkunartakti, fremur en skörpum sveiflum. Við spáum 0,6% hækkun reiknaðrar húsaleigu í júní og svipaðri þróun út árið.

Flugfargjöld hækka venju samkvæmt og bensín lækkar enn

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu talsvert í síðasta mánuði, meira en við spáðum. Þróunin er þó í samræmi við hefðbundið árstíðamynstur, þar sem fargjöld lækka yfirleitt í maí en hækka aftur í júní og júlí. Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld hækki um 10,7% í júní og vegi þannig þungt til hækkunar vísitölu neysluverðs í mánuðinum.

Samkvæmt verðmælingu okkar lækkar bensín um 0,6% í júní. Gangi spáin eftir verður þetta fjórði mánuðurinn í röð sem bensínverð lækkar á milli mánaða.

Spá um þróun VNV í júní 2025

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,5% 0,3% 0,05%
Áfengi og tóbak 2,6% 0,3% 0,01%
Föt og skór 3,7% 0,0% 0,00%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,4% 0,04%
Reiknuð húsaleiga 20,1% 0,6% 0,12%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,8% 0,7% 0,03%
Heilsa 4,1% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 3,9% 0,4% 0,02%
- Kaup ökutækja 6,2% 0,1% 0,00%
- Bensín og díselolía 3,5% -0,6% -0,02%
- Flugfargjöld til útlanda 2,4% 10,7% 0,23%
Póstur og sími 1,7% 0,1% 0,00%
Tómstundir og menning 10,8% 0,0% 0,00%
Menntun 0,9% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,4% 1,0% 0,06%
Aðrar vörur og þjónusta 5,1% 0,4% 0,02%
Alls 100,0%   0,56%

Verðbólga nokkuð stöðug í sumar en eykst í haust

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% í júní, 0,34% í júlí, 0,22% í ágúst og standi í stað í september. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 3,9% í júní, 3,7% í júlí, 3,9% í ágúst og 4,1% í september. Hækkun ársverðbólgunnar í ágúst og september skýrist einkum af grunnáhrifum. Í ágúst í fyrra voru skólagjöld felld niður í nokkrum háskólum og skólamáltíðir í grunnskólum voru gerðar gjaldfrjálsar í september síðastliðnum. Þessi stöku lækkunaráhrif ýttu verðbólgu tímabundið niður síðasta haust, en hverfa nú úr samanburðinum og leiða því til hækkunar á mældri ársverðbólgu, þrátt fyrir að undirliggjandi verðlagsþróun sé stöðug.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
20. júlí 2026
Vikubyrjun 20. júlí 2026
Greiðslukortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára, bæði innanlands og erlendis. Verðbólga í Bandaríkjunum lækkaði á milli mánaða, aðallega vegna lægra bensínsverðs. 
Vikubyrjun
13. júlí 2026
Vikubyrjun 13. júlí 2026
Ferðamannafjöldinn í júní dróst saman um 4,8% á milli ára og atvinnuleysi mældist 0,6 prósentustigum meira en fyrir ári síðan. Við spáum því að verðbólga í júlí muni mælast óbreytt á milli mánaða og standa í 5,2%.  
8. júlí 2026
Spáum óbreyttri verðbólgu í júlí
Við spáum því að verðbólga mælist 5,2% í júlí. Sumarútsölur og lægra bensínverð hafa áhrif til lækkunar í mánuðinum. Flugfargjöld til útlanda munu aftur á móti hafa mest áhrif til hækkunar gangi spá okkar eftir. Við teljum líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í næsta mánuði.
Vikubyrjun
6. júlí 2026
Vikubyrjun 6. júlí 2026
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði milli ára í maí, en gistinóttum Íslendinga fækkaði. Færri ný störf urðu til í Bandaríkjunum í júní en búist var við og verðbólga á evrusvæðinu í júní var lægri en búist var við.
Mánaðamót 2
1. júlí 2026
Mánaðamót 1. júlí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
29. júní 2026
Vikubyrjun 29. júní 2026
Verðbólga jókst úr 5,1% í 5,2% í júní. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu töluvert meira en við gerðum ráð fyrir, en þau eru nú 28% hærri en á sama tíma í fyrra.
26. júní 2026
Verðbólgumælingin bendir til kólnunar þrátt fyrir hækkun ársverðbólgu
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða og verðbólga hækkar því úr 5,1% í 5,2%. Við spáðum því að verðbólga myndi standa í stað. Hækkun á flugfargjöldum hafði mest áhrif til hækkunar á milli mánaða og skýrir sífellt stærri hluta ársverðbólgunnar. Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn verða sífellt skýrari.
Vikubyrjun
22. júní 2026
Vikubyrjun 22. júní 2026
Í vikunni fáum við verðbólgutölur fyrir júnímánuð, en við spáum því að verðbólga mælist 5,1% og standi í stað á milli mánaða. Í liðinni viku komu nýjar kortaveltutölur frá Seðlabankanum sem sýna að það hægir á vexti neyslunnar, en þó eru ekki merki um snöggkólnun líkt og fyrri gögn, sem nú hafa verið leiðrétt, höfðu bent til.
18. júní 2026
Áfram rólegt á íbúðamarkaði 
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4% á milli mánaða í maí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,2% og er talsvert lægri en hækkanir á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur því lækkað um 2,4% á milli ára og maí er sjötti mánuðurinn í röð þar sem raunverð lækkar á þann mælikvarða. Velta á íbúðamarkaði hefur jafnframt verið talsvert minni það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
16. júní 2026
Seigla í einkaneyslu eftir allt saman?
Kortavelta íslenskra heimila stóð nokkurn veginn í stað á milli ára í maí, að teknu tillit til verðlags og gengis. Tölur fyrir apríl voru jafnframt leiðréttar upp á við en þær höfðu sýnt töluverðan samdrátt. Gömlu apríltölurnar voru birtar daginn fyrir ákvörðun peningastefnunefndar og hafa mögulega haft áhrif á ákvörðunina. Uppfærðar tölur benda til þess að áfram hægi á vexti einkaneyslu, en ekki til snöggkólnunar eins og apríltölurnar gáfu til kynna.