Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Seigla í ferða­þjón­ust­unni þrátt fyr­ir mikla óvissu

Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn fyrstu fjóra mánuði ársins í ár og í fyrra. Á móti fara færri tengifarþegar um flugvöllinn og utanlandsferðir Íslendinga hafa dregist verulega saman. Þó sumarið líti ágætlega út er meiri óvissa um haustið.
27. maí 2026

Þrátt fyrir minna flugframboð um Keflavíkurflugvöll það sem af er ári hafa jafn margir erlendir ferðamenn farið um flugvöllinn samanborið við sama tíma í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Utanlandsferðir Íslendinga hafa aftur á móti dregist verulega saman á sama tíma, eða um rúmlega 15%. Einnig hefur fjöldi tengifarþega um völlinn dregist saman. Samhliða hefur verð á flugfargjöldum til og frá landinu hækkað nokkuð og verið að meðaltali um 20% hærra en á fyrstu mánuðum síðasta árs. Minna framboð og hærra verð hefur hingað til ekki haft áhrif á komur ferðamanna til landsins, en haft meiri áhrif á utanlandsferðir Íslendinga. Þetta er sérlega áhugavert í ljósi þess að raungengið er mjög hátt núna, sem ætti að draga úr komum til landsins og hvetja til utanlandsferða Íslendinga.

Ferðamenn eyða jafn miklu og í fyrra en fá minna

Það má þó sjá áhrif hás raungengis í þróun kortaveltu erlendra ferðamanna. Það sem af er ári hefur kortavelta á hvern ferðamann nokkurn veginn staðið í stað borið saman við sömu mánuði í fyrra, ef við leiðréttum fyrir gengi. Það þýðir að ferðamenn eyða jafn miklu í ferðalög sín, í sínum gjaldeyri, og í fyrra. Ef við leiðréttum kortaveltu á hvern ferðamann með verðlagi sést að hún hefur dregist saman og var um 7,5% lægri að meðaltali fyrstu fjóra mánuði ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Það þýðir að ferðamenn eru að eyða jafn miklu og í fyrra en vegna þess að verð á þjónustu hefur hækkað fá þeir minna fyrir. Apríl sker sig reyndar aðeins úr þar sem kortavelta á mann dróst nokkuð meira saman, bæði á föstu gengi og á föstu verðlagi. Ef við lítum aðeins á fyrstu þrjá mánuði ársins voru ferðamenn að eyða meira en sömu mánuði í fyrra en fengu fyrir það minni þjónustu.

Sólmyrkvi í ágúst en óvissa um framhaldið

Útlitið fyrir sumarið er þokkalegt og þá sérstaklega ágústmánuð vegna sólmyrkvans sem verður 12. þess mánaðar. Gisting er meira og minna uppbókuð í kringum þá dagsetningu og því útlit fyrir nokkuð góðan mánuð í heild.

Ein stærsta óvissan fyrir ferðaþjónustuna og raunar efnahagsþróun almennt snýr að því hvenær samningar nást á milli Bandaríkjanna og Írans og hvenær opnað verður fyrir skipaumferð um Hormússund. Icelandair hefur til að mynda dregið úr flugframboði nú á öðrum ásfjórðungi um 2%, en einnig tilkynnt að flugframboð fyrir næsta haust verði minnkað, að stærstum hluta vegna hækkunar á olíuverði.

Fréttir hafa þó borist um að flugfélög í Evrópu hafi ekki miklar áhyggjur af eldsneytisskorti fyrir sumarið. Aukið olíuframboð, til dæmis frá Bandaríkjunum og Noregi, hefur dregið verulega úr þeim áhyggjum. Mikil hækkun á verði flugvélaeldsneytis hefur hvatt olíuhreinsistöðvar í Evrópu til að forgangsraða framleiðslu á flugvélaeldsneyti. Það er því síður útlit fyrir skort á flugvélaeldsneyti en útlit fyrir að verð á flugfargjöldum verði aftur á móti nokkuð hærra en ella.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.