Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 6,0% verð­bólgu í nóv­em­ber

Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
12. nóvember 2026

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,46% í október og ársverðbólga stóð í stað í 5,9%. Við spáum nú 0,41% lækkun vísitölunnar í nóvember og að ársverðbólga hækki í 6,0%. Ástæða hækkunar á verðbólgu er að lækkunin á milli mánaða í nóvember á síðasta ári var meiri, eða 0,48%. Hagstofan birtir nóvembermælinguna fimmtudaginn 26. nóvember.  

Nóvembertilboð og flugfargjöld hafa mest áhrif á mælinguna 

Verð á flugfargjöldum til útlanda lækka alla jafna í nóvember og við gerum ráð fyrir að það hafi mest áhrif til lækkunar í mánuðinum. Við gerum ráð fyrir að verðhækkanir á nýjum bílum hafi mest áhrif til hækkunar í mánuðinum, en rafbílastyrkur var lækkaður úr 500 í 400 þúsund krónur og felldur alveg niður fyrir bíla dýrari en 8 m.kr.

Flugfargjöld lækka þó nokkuð í nóvember 

Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkar alla jafna töluvert á milli mánaða í nóvember og við gerum nú ráð fyrir að flugfargjöld lækki nokkurn veginn jafn mikið á milli mánaða nú og í nóvember í fyrra, eða um rétt tæplega 15%.  

Hægt hefur á hækkun eldsneytis 

Samkvæmt verðathugun okkar hefur verð á eldsneyti hækkað um tæp 2% frá síðustu verðsöfnunarviku. Þar af hefur bensínverð hækkað um 1,1% en verð á dísilolíu um tæp 4%. Verð á dísilolíu hefur hækkað töluvert meira en verð á bensíni á síðustu mánuðum. Sem dæmi var verð á dísilolíu í október orðið hærra en það var í desember í fyrra, áður en olíugjöld voru felld niður. Verð á bensíni hefur hækkað minna og er enn þá lægra en það var í lok síðasta árs.  

Hækkun á verði nýrra bíla 

Styrkur til rafbílakaupa var lækkaður úr 500 í 400 þúsund krónur um síðustu mánaðamót og felldur niður fyrir rafmagnsbíla sem kosta meira en 8 m.kr. Við vitum ekki nákvæmlega hvaða bíla Hagstofan mælir og því ríkir talsverð óvissa um áhrifin á þennan lið en okkur þykir líklegt að vinsælustu rafbílarnir séu nú ekki lengur styrkhæfir og kosti neytendur því 500 þúsund krónum meira. Heilt yfir gerum við ráð fyrir að verð á nýjum bílum hækki um 2% í nóvember. 

Matarkarfan hækkar aðeins  

Við gerum ráð fyrir að matarkarfan hækki aðeins lítillega í nóvember, eða um 0,06% frá síðasta mánuði. Samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ mældist um 0,05% hækkun á milli mánaða samkvæmt uppfærslu þeirra 5. nóvember. Minni hækkun í nóvember en síðustu mánuði skýrist meðal annars af sterkara gengi samkvæmt spá okkar. 

Reiknuð húsaleiga hækkar hægar 

Síðustu tvo mánuði hefur hægt þó nokkuð á hækkunum á reiknaðri húsaleigu. Við teljum það vísbendingu um að hægari verðhækkanir á íbúða- og leigumarkaði séu farnar að koma fram í útreikningum á þeim lið. Við gerum ráð fyrir að mánaðarhækkun á reiknaðri húsaleigu verði að meðaltali í kringum 0,4% allra næstu mánuði. 

Spá um þróun VNV í október 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,3% 0,1% 0,01%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,4% -2,0% -0,07%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,3% 0,02%
Reiknuð húsaleiga 21,0% 0,4% 0,08%
Húsgögn og heimilisbúnaður 3,9% -2,0% -0,08%
Heilsa 4,1% 0,5% 0,02%
Ferðir og flutningar (annað) 5,7% -0,8% -0,05%
Kaup ökutækja 4,4% 2,0% 0,09%
Bensín og díselolía 3,4% 2,0% 0,07%
Flugfargjöld til útlanda 2,3% -15,0% -0,40%
Upplýsingar og fjarskipti 4,3% -0,6% -0,03%
Afþreying, íþróttir og menning 9,1% -0,3% -0,03%
Menntun 1,1% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,5% -0,6% -0,03%
Fjármálaþjónusta 1,2% -0,1% 0,00%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% -0,6% -0,02%
Alls 100,0%   -0,41%

Verðbólguspá til næstu mánaða nær óbreytt 

Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan lækki um 0,41% í nóvember, hækki svo um 0,92% í desember, lækki um 0,25% í janúar og hækki svo um 0,79% í febrúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 6,0% í nóvember, 5,7% í desember, 5,1% í janúar og 4,9% í febrúar. Spáin er lítið breytt frá fyrri spá. 

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
18. nóv. 2026
Óbreyttir vextir í samræmi við væntingar
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í morgun og var ákvörðunin einróma. Tónninn var að okkar mati mildur og er ljóst að nefndin hefur vaxandi áhyggjur af kólnandi hagkerfi. Enn er þó lögð áhersla á að verðbólga og verðbólguvæntingar séu langt yfir markmiði. Gangi verðbólguspár eftir gerum við ráð fyrir að nefndin geti lækkað vexti í febrúar.
17. nóv. 2026
Íslendingar auka erlenda neyslu sína
Kortavelta Íslendinga jókst um 2,7% á milli ára í október að raunvirði. Áfram er mikill vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis á sama tíma og samdráttur mælist innanlands. Við spáum því að einkaneysla aukist lítið í ár en taki síðan smám saman við sér.
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september.