Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Mán­að­ar­yf­ir­lit yfir sér­tryggð skulda­bréf

Viðskiptabankarnir seldu sértryggð bréf fyrir 1.820 m.kr. í júlí. Frá áramótun hefur ávöxtun á verðtryggðu bréfunum almennt verið betri en á óverðtryggðu bréfunum.
Ferðafólk
4. ágúst 2021 - Greiningardeild

Landsbankinn seldi bréf í flokknum LBANK CB 25 að nafnvirði 1.820 m.kr. á kröfunni 3,56% (0,56% álag á ríki) í útboði 6. júlí. Íslandsbanki og Arion banki héldu ekki útboð á sértryggðum skuldabréfum í júlí. Veltan á markaði í júlí var 6,2 ma.kr., sem er nokkuð minna en var í júní (10,2 ma.kr). Frá áramótun hefur ávöxtun á verðtryggðu bréfunum verið milli 2,3% og 4,8%. Á óverðtryggðu bréfunum var ávöxtun milli -0,3% og 0,8%.

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. maí 2026
Stöðugleiki á gjaldeyrismarkaði - spáum þó lítils háttar veikingu
Það sem af er ári hefur krónan styrkst og evran stendur núna í 144 krónum. Nokkuð gott jafnvægi hefur verið á milli innflæðis og útflæðis á gjaldeyrismarkaði. Raungengi er mjög hátt og við eigum von á að krónan veikist næstu ár.
4. maí 2026
Sólmyrkvinn gæti skapað verðbólguskot á versta tíma
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Gríðarleg eftirspurn er eftir flugi til landsins, gistingu, veitingaþjónustu og bílaleigubílum á þeim tíma og mikið er uppbókað nú þegar. Aukin velta og verðþrýstingur á ýmissi þjónustu verður líklega töluverð á þeim svæðum sem sólmyrkvinn sést.
Mánaðamót 2
4. maí 2026
Mánaðamót 4. maí 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. maí 2026
Vikubyrjun 4. maí 2026
Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og gistinóttum á hótelum fjölgaði á milli ára. Seðlabanki Bandaríkjanna, Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki héldu vöxtum óbreyttum.
29. apríl 2026
Verðbólga hjaðnar í 5,2%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% og lækkar verðbólga við það úr 5,4% í 5,2%. Við höfðum spáð því að verðbólga myndi hækka í 5,5%. Mestu munaði að flugfargjöld hækkuðu nokkuð minna í apríl en við höfðum spáð. Eldsneytisverð hefur áfram mest áhrif til hækkunar á milli mánaða. Mælingin eykur líkur á því að Seðlabankinn taki minna hækkunarskref í maí.
27. apríl 2026
Hægari verðhækkanir á íbúðamarkaði og raunverðslækkanir í kortunum
Hátt vaxtastig, ströng lánþegaskilyrði og breytt lánaframboð hafa dregið úr verðhækkunum á íbúðamarkaði. Raunverð íbúða hefur nú lækkað nokkra mánuði í röð og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt og birgðatími hefur lengst, sérstaklega á nýjum íbúðum.
Vikubyrjun
27. apríl 2026
Vikubyrjun 27. apríl 2026
Árshækkun vísitölu íbúðaverðs mældist 2,6% og vísitölu leiguverðs 6,3% í mars. Velta skv. VSK-skýrslum dróst saman að raunvirði á milli ára á VSK-tímabilinu jan-feb. Á miðvikudag birtir Hagstofan aprílmælingu vísitölu neysluverðs. Við spáum því að verðbólga hækki úr 5,4% í 5,5%.
22. apríl 2026
Vísbendingar um kólnandi hagkerfi
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 5% að raunvirði í janúar og febrúar, samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þá sýna nýleg gögn um fjölda starfandi að verulega hefur dregið úr fjölgun starfa sem stóð í stað á milli ára í febrúar.
20. apríl 2026
Merki um að innlend neysla sé að minnka
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.
Vikubyrjun
20. apríl 2026
Vikubyrjun 20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.