Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Korta­velta lands­manna í sókn allt síð­asta ár

Kortavelta landsmanna var alls 4,2% meiri á síðasta ári en árið 2023 og jókst milli ára alla mánuði ársins, miðað við fast verðlag og gengi. Telja má líklegt að Seðlabankinn fylgist vel með neyslustiginu í vaxtalækkunarferlinu og reyni að koma í veg fyrir að uppsafnaðar innistæður hrúgist út í neyslu. Neysla ferðamanna hér á landi mældist aðeins 1% meiri í fyrra en árið áður sé miðað við fast verðlag.
20. janúar 2025

Alls nam greiðslukortavelta íslenskra heimila 127 mö. kr. í desember og jókst um 4,4% á milli ára, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Innanlands jókst kortavelta íslenskra heimila um 1,4% að raunvirði og erlendis jókst hún um 18,2%, á föstu gengi, sé miðað við desembermánuð í fyrra.

Heildarkortaveltan jókst milli ára í hverjum einasta mánuði síðasta árs og var í heild 4,2% meiri en árið 2023. Hafa ber í huga að kortavelta á mann hefur ekki aukist jafnmikið og heildarkortaveltan þar sem landsmönnum fjölgaði milli ára. Enn sem komið er liggja ekki fyrir gögn um fjölda landsmanna undir lok síðasta árs. Hlutfallslega jókst kortavelta Íslendinga mun meira í útlöndum en hér á landi, um 15% erlendis og 1,5% innanlands. Til þess að leiðrétta fyrir verðlags- og gengissveiflum eru gögnin skoðuð á föstu verðlagi desembermánaðar og föstu meðalgengi sama mánaðar.

Hafa ber í huga að kortavelta Íslendinga erlendis kemur bæði frá kortum sem eru straujuð á ferðalögum til útlanda en einnig í erlendri netverslun. Því hefur fylgni milli ferðalaga og kortaveltu verið takmörkuð, en brottfarir Íslendinga til útlanda voru um það bil jafnmargar árin 2023 og 2024 og má því leiða líkum að því að netverslun hafi verið umtalsverð.

Mun neyslukraftur halda aftur af vaxtalækkunum?

Þróun kortaveltu ber þess merki að meðalheimilið hafi að miklu leyti staðið af sér vaxtastigið án þess að hafa þurft að halda verulega aftur af neyslu. Innlán hafa líka aukist verulega og því líklega áfram innistæða til neyslu, og áfram virðist tiltölulega lítið um yfirdrátt. Telja má líklegt að Seðlabankinn fylgist vel með neyslustiginu í vaxtalækkunarferlinu og reyni að koma í veg fyrir að innistæður hrúgist út í neyslu. Kraftur í neyslu í bland við uppsafnaðar innistæður heimila gæti þannig komið í veg fyrir að Seðlabankinn leyfi raunstýrivöxtum að lækka og lækki vexti aðeins sem nemur hjöðnun verðbólgunnar.  

Einkaneysla virðist hafa aukist sáralítið 2024

Kortavelta gefur gjarnan ágæta vísbendingu um þróun einkaneyslu, þótt kortaveltan sveiflist þó nokkuð meira. Hagstofan birtir einkaneyslugögn aðeins ársfjórðungslega en Seðlabankinn birtir kortaveltugögn mánaðarlega. Gögn fyrstu þriggja ársfjórðunga síðasta árs benda til þess að einkaneysla hafa aukist mun minna en kortavelta, eða aðeins um 0,2%. Þó kann enn að vera að einkaneyslugögn verði uppfærð og hún reynist meiri, eða að neyslan á fjórða fjórðungi verði þó nokkuð meiri en á fyrri fjórðungum.  

Erlend kortavelta innanlands jókst töluvert í desember

Kortavelta erlendra greiðslukorta hér á landi jókst um 18% á föstu verðlagi (VNV) milli ára í desember, samkvæmt gögnum Seðlabankans. Þetta er mikil aukning milli ára, sú mesta sem hefur mælst síðan í október 2023. Ferðamönnum fjölgaði einnig milli ára í desember en þó mun minna eða um 5% milli ára. Séu kortaveltutölurnar leiðréttar fyrir gengi sýna þær um 27,4% aukningu milli ára í desember.

Sé litið á allt síðasta ár sést að erlend kortavelta hér á landi jókst um 6% miðað við fast gengi og 1% miðað við fast verðlag. Það segir okkur að ferðamenn eyddu 6% meira í sinni eigin mynt en keyptu aðeins 1% meira af vörum og þjónustu fyrir þann pening. Ferðamenn sem komu hingað til lands í fyrra voru 2,2% fleiri en árið áður.

Greiðslukortajöfnuður neikvæður í nóvember og desember

Greiðslukortajöfnuður var neikvæður um 9,2 ma. kr. í desember, mjög svipaður og í desember árið áður þegar hann var neikvæður upp á 9,4 ma. kr. Það þýðir að erlend kortavelta hér á landi var 9,2 mö. kr. meiri en íslensk kortavelta í útlöndum. Kortajöfnuðurinn var neikvæður um 8 ma. kr. nóvember en almennt er afgangur á sumrin sem snýst yfir í halla í október eða í nóvember.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Kranar á byggingarsvæði
26. jan. 2026
Vikubyrjun 26. janúar 2026
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um tæplega 1,2% á milli mánaða í desember og á sama tíma lækkaði vísitala leiguverðs um 1,4%. Hagstofan birti vísitölu launa, sem hélst óbreytt á milli mánaða. Á fimmtudag verður vísitala neysluverðs í janúar birt.
Mynt 100 kr.
19. jan. 2026
Vikubyrjun 19. janúar 2026
Kortavelta heimila heldur áfram að aukast á milli ára en velta erlendra korta hér á landi hefur tekið að dragast saman í takt við fækkun ferðamanna. Í vikunni birtir HMS vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu.
15. jan. 2026
Spáum 5,1% verðbólgu í janúar
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30% á milli mánaða í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 4,5% í 5,1%. Janúarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í mánuðinum en breytingar á gjaldtöku ökutækja hafa mest áhrif til hækkunar, samkvæmt spánni. Mikil óvissa er þó um hvernig Hagstofan tekur breytingarnar inn í verðmælingar.
Smiður
13. jan. 2026
Atvinnuleysi eykst en kortavelta líka
Atvinnuástandið hefur versnað smám saman og eftirspurn eftir vinnuafli er minni en áður. Atvinnuleysi hefur aukist hratt og mældist 4,4% í desember, en svo mikið hefur atvinnuleysi ekki mælst í rúmlega þrjú og hálft ár. Þessi þróun styður við markmið Seðlabankans um að draga úr þenslu í hagkerfinu og vinna bug á verðbólgu. Á sama tíma heldur neysla landsmanna áfram að aukast með hverjum mánuðinum, en heildarkortavelta hefur aukist um 6% á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs frá sama tímabili árið áður.
Bílar
12. jan. 2026
Breytt gjaldtaka af bílum gæti aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig
Breytingar á gjaldtöku hins opinbera af rekstri og kaupum ökutækja gætu aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig. Óvíst er hvort áhrifin komi fram að öllu leyti í janúar eða dreifist yfir næstu mánuði, en telja má að það velti ekki síst á eftirspurn eftir bílum í byrjun árs.
Rafbíll í hleðslu
12. jan. 2026
Vikubyrjun 12. janúar 2026
Skráð atvinnuleysi hélt áfram að aukast í desember og var 0,6 prósentustigum meira en á sama tíma árið áður. Álíka margir erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í fyrra og síðustu tvö ár á undan en utanlandsferðir Íslendinga voru 18% fleiri í fyrra en árið á undan. Þó nokkur óvissa ríkir um verðbólgumælingu janúarmánaðar, ekki síst í tengslum við breytta gjaldtöku á innflutningi og rekstri bíla. Við gefum út verðbólguspá næsta fimmtudag.
5. jan. 2026
Mánaðamót 5. janúar 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vöruhótel
5. jan. 2026
Vikubyrjun 5. janúar 2026
Verðbólgan kom aftan að landsmönnum stuttu fyrir jól og fór úr 3,7% í 4,5%. Verðbólga í desember var aðeins 0,3 prósentustigum minni en í upphafi síðasta árs þegar hún mældist 4,8%. Á sama tímabili lækkuðu stýrivextir um 1,25 prósentustig, úr 8,50% í 7,25%.
Bananar
22. des. 2025
Verðbólgumælingin ekki jafnslæm og hún virðist í fyrstu
Verðbólga rauk upp í 4,5% í desember eftir að hafa hjaðnað verulega í nóvember og mælst 3,7%. Rífleg hækkun á flugfargjöldum til útlanda skýrir stóran hluta hækkunarinnar, en einnig töluverð gjaldskrárhækkun á hitaveitu í desember. Aukin verðbólga skýrist þannig af afmörkuðum, sveiflukenndum liðum og ekki er að greina merki um að undirliggjandi verðbólguþrýstingur hafi aukist að ráði.
Vélsmiðja Guðmundar
22. des. 2025
Vikubyrjun 22. desember 2025
Fasteignamarkaðurinn fer enn kólnandi, ef marka má skýrslu sem HMS gaf út í síðustu viku. Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6% á milli ára í nóvember. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 1,9% á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt Hagstofunni. Í dag birtir Hagstofan verðbólgutölur.