Höf­uð­borg­ar­svæð­ið leið­ir verð­hækk­an­ir – þó er mik­ið líf víða

Almennt virðist íbúðaverð hækka hraðar á höfuðborgarsvæðinu en utan þess. Þróunin er þó misjöfn eftir svæðum og víða má finna þéttbýliskjarna sem eru líflegri en höfuðborgarsvæðið.
Fasteignir
16. ágúst 2021 - Hagfræðideild

Líkt og tíðrætt hefur verið í Hagsjám Hagfræðideildar er mikið líf á fasteignamarkaði höfuðborgarsvæðisins um þessar mundir. Hækkanir eru orðnar nokkuð meiri en spár gerðu ráð fyrir og er ástandið m.a. farið að valda Seðlabankanum áhyggjum. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar virðast viðskipti með sérbýli á höfuðborgarsvæðinu leiða hækkanirnar. 12 mánaða hækkun íbúðaverðs mælist nú 17% í sérbýli á höfuðborgarsvæðinu og 14% í fjölbýli en aðeins 8% alls utan höfuðborgarsvæðisins. Eftirspurnin jókst verulega eftir sérbýliseignum eftir að Covid-19-faraldurinn braust út og mögulega hefur íbúðamarkaður utan höfuðborgarsvæðisins getað mætt þeirri eftirspurn betur með þeim afleiðingum að verðhækkanir eru hóflegri þar.

Víða finnast þó einstaka þéttbýliskjarnar þar sem verðhækkanir eru meiri en á höfuðborgarsvæðinu, til að mynda Árborg, þar sem íbúðaverð hækkaði um 18% milli ára á öðrum ársfjórðungi samkvæmt athugun úr Verðsjá Þjóðskrár Íslands. Til samanburðar mældist hækkunin 15% á höfuðborgarsvæðinu. Sé litið til þróunar frá upphafi árs 2015 í nokkrum af stærstu þéttbýliskjörnum landsins má sjá að almennt hefur íbúðaverð hækkað mest í Árborg og því næst Reykjanesbæ.

Meðalfermetraverð mælist þó um þriðjungi lægra í þéttbýliskjörnunum utan höfuðborgarsvæðisins en á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir hækkanir síðustu ára. Lægsta fermetraverðið meðal þeirra kjarna sem til skoðunar er í Reykjanesbæ þar sem fermetrinn seldist á um 350.000 kr. á öðrum ársfjórðungi þessa árs til samanburðar við 550.000 kr. á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Höfuðborgarsvæðið leiðir verðhækkanir – þó er mikið líf víða

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Strönd
14. júní 2024
Óvæntur kraftur í kortaveltu í maí
Kortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára í maí, bæði innanlands og erlendis. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur