Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Veru­lega hef­ur hægt á hag­vexti

Eftir kröftugan hagvöxt á síðasta ári hefur hægt ansi hratt á honum. Það má skýra að töluverðu leyti með því að verulega hefur hægt á vexti ferðaþjónustunnar.
11. desember 2017

Samantekt

Hagvöxtur mældist 3,1% á þriðja ársfjórðungi borið saman við sama fjórðung árið áður skv. bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 3,4% vaxtar á öðrum fjórðungi og 5,6% á fyrsta fjórðungi. Tölurnar virðast því benda til þess að verulega sé tekið að hægja á vexti hagkerfisins en hagvöxtur mældist 7,4% á síðasta ári. Hagvöxturinn á þriðja fjórðungi nú er sá minnsti í tvö ár.

Í spá Hagfræðideildar frá því í nóvember var gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 5,5% á þessu ári. Hagvöxtur á fyrstu þremur fjórðungum ársins nemur 4,3% og er hann því minni en við spáum að verði yfir árið í heild. Hér er þó rétt að benda á að þetta eru bráðabirgðatölur auk þess sem tölur fyrir fjórða ársfjórðung munu hafa sín áhrif á vöxtinn.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verulega hefur hægt á hagvexti

Þú gætir einnig haft áhuga á
17. apríl 2026
Hagspá til 2028: Hagkerfi í hægum vexti
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.
Verðbólga
16. apríl 2026
Spáum 5,5% verðbólgu í apríl
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.
Vikubyrjun
16. mars 2026
Vikubyrjun 16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
Stýrivextir
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting. 
Mánaðamót 4
12. mars 2026
Spáum 5,4% verðbólgu í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.