Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Mikl­ar hækk­an­ir á hluta­bréfa­mark­aði

Mikið líf hefur verið á íslenskum hlutabréfamarkaði á síðustu mánuðum og verðhækkanir verið miklar. Frá áramótum hefur OMXI10 vísitalan hækkað um rúmlega 18% en það er mikil hækkun á svo skömmum tíma. Frá því að markaðurinn náði lágmarki í mars á síðasta ári hefur hann hækkað um tæplega 91%. Viðskipti á markaðnum hafa einnig aukist mikið á síðustu misserum og var desembermánuður metmánuður í fjölda viðskipta en þá voru hlutabréfaviðskipti tæplega 9.500.
Kauphöll
22. febrúar 2021 - Greiningardeild

OMXI10 vísitalan, sem samanstendur af 10 stærstu félögunum í Kauphöllinni mælt í markaðsvirði, fór yfir 3.000 stig þann 18. febrúar í fyrsta skiptið. Verðhækkanir á hlutabréfum Marels hafa leitt hækkun vísitölunnar en félagið hefur hækkað um 18,5% frá áramótum. Markaðsvirði félagsins er um 703 ma.kr. en til samanburðar er heildarvirði félaganna 10 í vísitölunni um 1.337 ma.kr. Vægi Marels í vísitölunni er því um 53% og því hafa allar breytingar á hlutabréfaverði Marels mikil áhrif á þróun vísitölunnar. Annað stórt félag á markaðnum er Arion banki en markaðsvirði hans er 215 ma.kr. og vegur bankinn um 16% í vísitölunni. Saman standa þessi tvö félög því á bak við um 69% vísitölunnar.

Þú gætir einnig haft áhuga á
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.