Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hæg­ir á vexti vöru­skipta­hall­ans

Halli á vöruviðskiptum jókst lítillega á milli ára í október og mældist 49,4 ma.kr, en var 47,5 ma.kr. í október í fyrra. Uppsafnaður halli á vöruskiptum hefur aukist frá fyrra ári, en þó hægar í ár en síðustu ár, og var 330 ma.kr. í október, sem er einungis lítillega meira en mældist á sama tíma í fyrra þegar hann var 320 ma.kr.
Flutningaskip
8. nóvember 2024

Þó vöruskiptahalli haldi áfram að aukast hefur hann ekki aukist eins mikið á milli ára í ár og síðustu tvö ár. Halli á vöruviðskiptum er viðbúinn, en síðasta áratug hefur verið viðvarandi vöruskiptahalli. Á sama tíma hafa þjónustuviðskipti skilað ríflegum afgangi. Þetta skýrist t.d. af auknum umsvifum í ferðaþjónustu sem hafa kallað á mikinn vöruinnflutning en á móti skilað töluverðum afgangi af þjónustuviðskiptum. Staðan í utanríkisviðskiptum gefur oft ágætis mynd af stöðunni í hagkerfinu og minni aukning  vöruskiptahalla getur verið merki um að hagkerfið fari kólnandi. Í ár gerum við ráð fyrir að afgangur af þjónustuviðskiptum rétt nái að vega upp vöruskiptahalla ársins í heild.

Ágætis kraftur í vöruútflutningi í október 

Heilt á litið var ágætis kraftur í vöruútflutningi í október og verðmæti vöruútflutnings jukust um 9% á verðlagi hvers árs. Ef tekið er tillit til gengisþróunar voru verðmætin um 8% meiri en á sama tíma í fyrra. Útflutningsverðmæti jukust í nánast öllum greinum vöruútflutnings í október. 

Útflutningsverðmæti sjávarafurða jukust um 2% á milli ára á föstu gengi, en hafa dregist saman um 3% það sem af er ári. Útflutningsverðmæti áls og álafurða í mánuðinum voru um 1% meiri en á sama tíma í fyrra á föstu gengi, en hafa dregist saman um 6% það sem af er ári. Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað og frá því í apríl hefur álverð verið hærra en á sama tíma í fyrra. Nú í október var heimsmarkaðsverð á áli um 18% hærra en í október í fyrra. Á sama tíma hefur álframleiðsla dregist saman, enda hafa stórnotendur raforku búið við skerðingar síðustu misseri.   

Útflutningur á eldisfiski og lyfjum færist hratt í aukana 

Töluverður kraftur hefur verið í útflutningi á eldisfiski það sem af er ári. Í október jukust útflutningsverðmæti eldisfisks um 26% á milli ára á föstu gengi og það sem af er ári hafa verðmætin aukist um 24% á milli ára. Útflutningsverðmæti lyfja og lækningavara færast nokkuð hratt í aukana og nú í október voru útflutningsverðmæti þeirra um 84% meiri en í fyrra. Það sem af er ári hafa útflutningsverðmæti aukist um 57% á milli ára á föstu gengi.  

Annar útflutningur en talinn er upp hér að ofan hefur staðið nokkurn veginn í stað það sem af er ári.

Vöruinnflutningur eykst í október 

Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 6% á milli ára á föstu gengi í október en það sem af er ári hafa verðmætin aukist um 1%. Innflutningur fjárfestingarvara jókst um 2% á milli ára í október á föstu gengi, en það sem af er ári hefur innflutningur á fjárfestingarvörum aukist um 4%. Nokkuð hefur hægt á innflutningi fjárfestingarvara eftir því sem liðið hefur á árið. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir litlum breytingum á fjárfestingu á seinni hluta ársins og eru þessar tölur í samræmi við þá spá. Innflutningur á hrávörum jókst hins vegar um 30% í október og hafa innflutningsverðmæti hrávara aukist um 8% á föstu gengi það sem af er ári. Þá jókst innflutningur á neysluvörum um 11% í október, og hefur aukist um 7% það sem af er ári á föstu gengi. Á móti hefur innflutningur á fólksbílum dregist töluvert saman það sem af er ári, eða um 48%. Við spáum lítilli aukningu í einkaneyslu á árinu.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.
Mánaðamót 2
4. ágúst 2026
Mánaðamót 4. ágúst 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
4. ágúst 2026
Vikubyrjun 4. ágúst 2026
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% á milli ára í júní. Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki héldu báðir vöxtum óbreyttum í síðustu viku.